Skora á borgina að draga til baka hagræðingakröfu sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 3. febrúar 2016 14:19 "Skólar eru hornsteinn samfélagsins í hverfinu og gríðarlega mikilvægt að vel sé búið að þeim,“ segir í ályktuninni. vísir/vilhelm
Foreldrafélög grunnskóla í Breiðholti skora á borgaryfirvöld að draga til baka hagræðingakröfu sem sett hefur verið á skóla- og frístundasvið þannig að tryggt sé að skólarnir geti sinnt sínum lögboðnu skyldum. Ef boðaður niðurskurður nái fram að ganga sé meðal annars fyrirséður enn frekari samdráttur sérkennslu í grunnskólum. Þetta kemur fram í ályktun frá stjórnum félaganna sem taka heilshugar undir ályktun Félags skólastjórnenda í Reykjavík vegna fjárhagslegrar stöðu grunnskóla í borginni og skertrar þjónustu við nemendur.Sjá einnig: Hagrætt fyrir 1.780 milljónir króna „Niðurskurður fjármagns til skólastarfs hefur nú þegar verið umtalsverður síðustu misseri og er svo komið að grunnþjónusta á mjög undir högg að sækja. Sérkennsla hefur dregist saman og allur stuðningur til barna með hvers konar sérþarfir sömuleiðis,“ segja félögin. Þá segir jafnframt að notendur þjónustu skólanna séu börn sem eigi allt sitt undir ákvörðunum fullorðinna, en hafi engar leiðir til áhrifa á þær ákvarðanir. Ef vel sé búið að menntun barna í skólaumhverfi muni þau endurgjalda það margfalt. „Við sem störfum í sjálfboðastarfi í foreldrafélögum skólanna störfum eftir þessari hugsjón, að vera málsvarar barnanna og búa börnum hverfisins gott skólaumhverfi, og skorum við á borgina að standa vel að sínu hlutverki gagnvart börnum borgarinnar.“ Undir ályktunina rita foreldrafélög í Breiðholtsskóla, Fellaskóla, Hólabrekkuskóla, Seljaskóla og Ölduselsskóla.
Tengdar fréttir „Svarar engu að sjá borgarstjórann dansa á sviði“ Á borgarstjórnarfundi í gær voru hagræðingaraðgerðir upp á tæpa tvo milljarða samþykktar. Borgarstjórn var gagnrýnd fyrir óljósar sparnaðaráætlanir. Borgarstjóri segir að sparað verði mest í ráðhúsinu og miðlægri þjónustu. 3. febrúar 2016 07:00 Mest lesið Sindri Freyr er látinn Innlent Voru látin í einhvern tíma áður en lögregla fór inn Innlent „Fyrirvarinn var í rauninni enginn“ Innlent Biður kvikmyndagerðarmanninn afsökunar Innlent Átök á aðalfundi og lögregla kölluð til Innlent „Er búinn að blokka 237 manneskjur á tíu dögum“ Innlent Áfengi og fíkniefni mældust í stýrimanninum Innlent Mótor bátsins var of stór og mennirnir ekki í björgunarvestum Innlent Tvö látin en ekkert bendi til saknæms atburðar Innlent „Okkar hlutverk að halda utan um hvert annað“ Innlent Fleiri fréttir Öllu tjaldað til við opnun nýrra undirganga Segir samstarfsfólk Katrínar hafa hvatt sig til að draga sig úr leik Átök á aðalfundi og lögregla kölluð til Undir yfirborði kosningabaráttunnar kraumi svæsinn slagur Bíða krufningar til að varpa ljósi á atburðarásina „Fyrirvarinn var í rauninni enginn“ Fyrstu tölur frá Reykjavík ættu að gefa góða mynd af úrslitum „Er búinn að blokka 237 manneskjur á tíu dögum“ Katrín græði stórum á vangetu kjósenda til að kjósa taktískt Andlát í Bolungarvík og forsetaefni í slorinu Héraðsdómur ruddur vegna fjölskyldutengsla og fyrri starfa dómara Áfengi og fíkniefni mældust í stýrimanninum Tvíburafolöld mætt í heiminn í Suðurnesjabæ Ferðafólki bjargað úr sjálfheldu við Þiðriksvallavatn Þriðjungur þekkir ekki neitt til Eiríks og Viktors Sindri Freyr er látinn Voru látin í einhvern tíma áður en lögregla fór inn Vill sjá leiðtoga á Norðurlöndunum en ekki aumingja og gungur Mótor bátsins var of stór og mennirnir ekki í björgunarvestum Óttast að þvingun og nauðung verði færð í lög Andlát til rannsóknar í Bolungarvík Áhyggjur læknanna ótímabærar og byggðar á misskilningi Ástandið í Hafnarfirði geti haft langvarandi áhrif á börn „Okkar hlutverk að halda utan um hvert annað“ Ræddu lokasprett æsispennandi kosningabaráttu Biður kvikmyndagerðarmanninn afsökunar Tvö látin en ekkert bendi til saknæms atburðar Enginn í haldi í tengslum við mannslát í Bolungarvík Slökkvilið kallað út vegna sprenginga í Hafnarfirði Lögregla rannsakar andlát í Bolungarvík Sjá meira
„Svarar engu að sjá borgarstjórann dansa á sviði“ Á borgarstjórnarfundi í gær voru hagræðingaraðgerðir upp á tæpa tvo milljarða samþykktar. Borgarstjórn var gagnrýnd fyrir óljósar sparnaðaráætlanir. Borgarstjóri segir að sparað verði mest í ráðhúsinu og miðlægri þjónustu. 3. febrúar 2016 07:00