Færri ölvaðir teknir undir stýri Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 22. janúar 2016 07:00 Lögregla ræðir við ökumann í miðbænum að næturlagi. vísir/hari
Skráð brot vegna ölvunaraksturs í fyrra á höfuðborgarsvæðinu voru nær helmingi færri en árið 2007, eða 651 á móti 1.266. Skráð brot vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna voru rúmlega tvöfalt fleiri árið 2015 en árið 2007, eða 803 á móti 337. Jónas Orri Jónasson, félagsfræðingur hjá Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, segir ýmsar skýringar geta verið á sveiflum milli ára. „Þetta getur meðal annars farið eftir áherslum hverju sinni, það er hversu mikill mannafli og tími er settur í verkið.“ Herferð á Facebook-síðu lögreglunnar í desember undanfarin tvö ár gegn ölvunarakstri, Hver ekur þér heim um hátíðarnar?, er mögulega farin að hafa áhrif, að mati Jónasar. Ein skýringin á mismuninum á fjölda brota vegna ölvunaraksturs 2007 og 2015 getur tengst hruninu, að því er Jónas telur. „Eftir hrun hækkaði áfengisverð auk þess sem minna var um móttökur og fleira í þeim dúr þar sem boðið var upp á áfenga drykki. Vegna færri tækifæra til drykkju má ætla að dregið hafi úr ölvun við akstur.“Jónas Orri Jónasson, félagsfræðingurHann bendir á að ýmislegt skýri fjölgun brota vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna. „Þótt fleiri náist núna þýðir það ekki endilega að fleiri séu að aka undir áhrifum. Árið 2006 var lögum og verklagi lögreglu vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna breytt. Lagagrunnurinn hafði fram að því verið veikur sem gerði lögreglu erfitt fyrir að takast á við þessi brot. Aukin þekking og betri búnaður lögreglunnar til að greina áhrif veldur því að færri komast upp með að aka undir áhrifum.“ Jónas tekur fram að sami einstaklingur geti hafa verið tekinn oftar en einu sinni. Eins geti nokkrir verið teknir í einu vegna óvissu um hver var raunverulega við stýrið.
Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Veður Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Erlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Fleiri fréttir Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Sjá meira