Flytja hefur þurft tugi sjúklinga á milli spítala Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 23. janúar 2016 18:58
Bilun í tölvusneiðmyndatæki á Landspítalanum í Fossvogi ógnar öryggi sjúklinga á bráðamóttökunni. Flytja hefur þurft tugi sjúklinga, sem margir hverjir eru mjög veikir, í sneiðmyndatöku á Landspítalanum við Hringbraut en slíkt reynist sjúklingunum erfitt. Aðfaranótt föstudagsins varð bilun í tölvusneiðmyndatæki á Landspítalanum í Fossvogi þar sem bráðamóttaka spítalans er. Þetta er eina slíka tækið í húsinu. Það er mikið notað en að meðaltali eru teknar sneiðmyndir af fimmtíu sjúklingum á dag með tækinu. Viðgerð lýkur í fyrsta lagi á mánudaginn þar sem panta þurfti varahlut til landsins. „Í nútíma læknisfræði þá er þetta tæki í raun og veru lykilgreiningartæki fyrir bráða og alvarlega sjúkdóma og þess vegna hefur þetta svo mikil áhrif á störf okkar,“ segir Hilmar Kjartansson yfirlæknir bráðamóttökunnar. Annað tölvusneiðmyndatæki er á Landspítalanum við Hringbraut. Tugir sjúklinga sem komið hafa á bráðamóttökuna í dag og í gær og nauðsynlega þarf að taka sneiðmynd af, hafa því verið sendir þangað með sjúkrabíl. Myndatakan og ferðin fram og aftur til baka getur tekið allt að fjörutíu mínútur. Ferðin reynist því mörgum erfið. „Þetta geta verið veikustu sjúklingarnir okkar sem að þurfa þennan flutning,“ segir Hilmar. Hilmar segir ástandið geta skapað hættu fyrir sjúklingana og ógna öryggi þeirra. Þá segir hann tækið úrsérgengið. Nauðsynlegt sé að fá annað slíkt tæki á spítalann svo tækin séu að minnsta kosti tvö. „Ég hef heyrt að þetta tæki sé með eina af hæstu notkunartölum fyrir öll sambærileg tæki í Evrópu þannig það er augljóslega kominn tími á að endurnýja þennan kost,“ segir Hilmar.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira