Sænski læknirinn hafði gert samning fyrir konuna sem kvað á um hvernig hann mætti misnota hana Birgir Olgeirsson skrifar 25. janúar 2016 12:51 Teikning af sænska lækninum Martin Trenneborg og verjanda hans Mari Schaub í réttarsal í Stokkhólmi. Vísir/EPA
Réttarhöld eru hafin yfir sænskum lækni sem sakaður er um að byrla konu ólyfjan, nauðga henni og svipta hana frelsinu í þeim tilgangi að halda henni sem kynlífsþræl í rammgirtu byrgi við afskekktan sveitabæ á Skáni í Svíþjóð. Málið hefur vakið mikinn óhug en maðurinn byrlaði konunni ólyfjan á heimili hennar í Svíþjóð í september síðastliðnum. Hann nauðgaði henni þar og ók síðan með hana meðvitundarlausa rúma 500 kílómetra að sveitabænum rétt utan við bæinn Kristianstad á Skáni. Þar kom hann henni fyrir í byrgi sem hann hafði verið með í byggingu undanfarin fimm ár og segja yfirvöld í Svíþjóð lækninn hafa ráðgert að halda konunni fanginni þar í nokkur ár.Grímurnar sem læknirinn notaði til að dulbúa sig.Sænska lögreglanVarð skelfingu lostinn þegar hann frétti af lögregluleit Upp komst um málið þegar læknirinn komst að því að lögreglan væri að leita að konunni. Það gerðist þegar hann ákvað að aka aftur til Stokkhólms með konuna svo hún gæti náð í föt á heimili sínu. Þegar þangað var komið kom í ljós að lögreglan hafði brotið upp hurðina á heimili hennar og skipt um lás. Læknirinn er sagður hafa orðið skelfingu lostinn þegar hann komst að því. Hann ákvað því að skipa konunni að fara á lögreglustöð í Stokkhólmi þar sem hún átti að segja lögreglunni að það amaði ekkert að henni og því mætti hætta leitinni að henni. Maðurinn fór með henni á lögreglustöðina og hafði skammbyssu meðferðis. Hafði hann hótað að myrða konuna ef hún gerði ekki eins og hann sagði. Þegar á lögreglustöðina var komið ákváðu lögreglumennirnir að taka konuna afsíðis og yfirheyra hana, þar sem þeir áttu bágt með að trúa hennar frásögn. Kom þá í ljós að hún var fangi læknisins og var hann handtekinn í kjölfarið.Konuna fær sömu martröðina aftur og aftur Fjölmiðlar ytra greina frá því að konan hafi mætt í dómsal með sjal sem huldi andlit hennar. Réttargæslumenn hennar sögðu frá því við réttarhöldin að hún fái stöðugt sömu martröðina um veru sína í byrginu. Læknirinn hefur játað að hafa svipt hana frelsi en neitar að hafa nauðgað henni.Þóttist vera bandarískur Í ákærunni kemur fram að maðurinn hefði hitt konuna á stefnumóti í Stokkhólmi í september síðastliðnum. Þóttist hann á þeim tíma vera bandarískur. Tveimur dögum síðar hitti hann konuna á ný og gaf henni þá súkkulaðihúðuð jarðarber. Hann hafði blandað svefnlyfinu rohypnol við súkkulaðið. Hann hafði síðan merkt nokkur jarðarber sem hann borðaði sjálfur. Þau innihéldu ekki rohypnol.Saksóknarar segja lækninn hafa sett konuna í hjólastól eftir að hún hafði misst meðvitund. Hann hafi keypt grímur til að dulbúa sig á meðan hann ók með konuna frá Stokkhólmi að heimili hans nærri Kristianstad. Á meðan bílferðinni stóð fylgdist hann með hjartslætti konunnar og blóðþrýstingi.Hér má sjá svefnherbergið í byrginu.Sænska lögreglanÞegar konan komst til meðvitundar var hún í byrginu þar sem læknirinn á að hafa nauðgað henni ítrekað. Er hann meðal annars sagður hafa þvingað konuna til að taka getnaðarvarnapillu og tekið sýni úr henni til að ganga úr skugga hvort hún væri smituð kynsjúkdómi. Var konan um vikutíma í byrginu. Bjó til samning fyrir konuna Við húsleit fann lögreglan í tölvu mannsins skjöl þar sem hann hafði viðrað hugmyndir um að reisa súlu í byrginu þar sem hann hafði ætlað fórnarlömbum sínum að dansa súludans. Hann hafði einnig skrifað upp samning þar sem hann lofaði að stytta prísund konunnar ef hún væri viljug til að stunda ákveðnar kynlífsathafnir með honum. Dvölin myndi síðan lengjast ef hún neitaði, en í samningum var talað um tíu ára prísund. Saksóknarar eru sagðir rannsaka hvort læknirinn hafi lagt á ráðin um að nema fleiri fórnarlömb á brott.Metinn sakhæfur Sakhæfismat yfir lækninn leiddi í ljós að hann væri andlega veikur en þó sakhæfur. „Umbjóðandi minn þráði ekkert heitara en að eignast lífsförunaut,“ sagði verjandi læknisins, Mari Schaub, við réttarhöldin í dag. „Hann er afar óhamingjusamur. Hann á enga kærustu. Við erum ekki að fást við ofbeldismann. Hann er venjulegur maður af holdi og blóði.“
Tengdar fréttir Sænskur læknir ákærður fyrir að nauðga konu ítrekað sem hann hélt innilokaðri í rammgirtu byrgi Upp komst um málið þegar hann bað konuna um að segja lögreglu að hætta leit að henni. 16. janúar 2016 23:03 Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Sjá meira
Sænskur læknir ákærður fyrir að nauðga konu ítrekað sem hann hélt innilokaðri í rammgirtu byrgi Upp komst um málið þegar hann bað konuna um að segja lögreglu að hætta leit að henni. 16. janúar 2016 23:03