Harðorð skýrsla um sjúkrahótel Sveinn Arnarsson skrifar 27. janúar 2016 07:00 Ríkisendurskoðun bendir á fjölda vankanta í stjórnsýslunni er varðar sjúkrahótel Sinnum ehf. vísir/anton
Ríkisendurskoðun segir það algjörlega óásættanlegt að tvær ríkisstofnanir, Landspítali - háskólasjúkrahús og Sjúkratryggingar Íslands, skuli deila sín á milli um starfsemi sjúkrahótels við Ármúla í Reykjavík sem rekið er af einkafyrirtækjunum Sinnum ehf. og Heilsumiðstöðinni ehf. Í skýrslunni kemur fram að Landspítalinn hafi allt frá árinu 2011 gert margvíslegar athugasemdir við aðstöðu, aðbúnað og efndir rekstraraðila á samningunum. Sjúkratryggingar hafi talið þær tilefnislausar og stofnanirnar deilt opinberlega vegna þessa. Ríkisendurskoðun hvetur velferðarráðuneytið til að höggva á hnútinn. Marka þurfi mun skýrari stefnu um eðli og rekstur sjúkrahótela og tryggja samræmi í samningum milli aðila. „Það má gera betur í þessum efnum og ljóst að staðan sem nú er uppi er ekki boðleg. Við verðum nú að vinna að lengri tíma lausn í þeim efnum,“ segir Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra.Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra.vísir/anton„Ég er búinn að sitja fund með aðilum Landspítalans og í dag mun ég halda fund með Sjúkratryggingum Íslands. Eftir þá fundi mun ég setjast niður með mínu fólki í ráðuneytinu til að finna lausn á þessu máli,“ segir ráðherra. Fram kemur í skýrslu Ríkisendurskoðunar að meginvandinn felist í því að stofnanirnar hafi mismunandi sýn á eðli, hlutverk og rekstrarform sjúkrahótelsins, notendahóp þess og þjónustustig. Síðasta föstudag sagði Heilsumiðstöðin upp samningi við Sjúkratryggingar. Að öllu óbreyttu leggst starfsemin af í lok apríl á þessu ári. Mun því engin gisting vera í boði af hálfu ríkisins fyrir sjúklinga sem þurfa að sækja til höfuðborgarinnar frá öðrum stöðum á landinu. Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri flæðisviðs LSH, segir Landspítala fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar enda taki hún undir öll helstu sjónarmið Landspítala, meðal annars að sjúkrahótelið verði að nýtast sjúklingum spítalans. Guðlaug Rakel segir Landspítala taka sömuleiðis undir það sjónarmið ráðherra að ófært sé að deilur standi um svo mikilvæga starfsemi á opinberum vettvangi, enda hafi Landspítali aldrei haft frumkvæði að slíku. Þessu verði að linna „Mikilvægt er að vanda samninga af þessu tagi svo þeir nýtist eins og best verður á kosið. Við erum vonsvikin að svona skyldi fara og að rekstraraðilinn skuli kjósa að segja sig frá verkinu með þessum hætti, fremur en að leita lausna. Við munum gera það sem við getum til að málið hljóti farsæla niðurstöðu hið fyrsta, enda höfum við enga aðra hagsmuni í málinu en þá sem lúta að skjólstæðingum okkar.“ Rekstraraðilar sjúkrahótelsins hafa fengið greitt um 105 milljónir króna að meðaltali ár hvert frá því samningar tókust milli Sjúkratrygginga og Sinnum ehf. Einnig fékk fyrirtækið greiddar svokallaðar efndabætur í tvígang árið 2012 án þess að loforð væri fyrir því í samningum milli aðila. Ekki náðist í Kolbrúnu Viðarsdóttur, framkvæmdastjóra Heilsumiðstöðvarinnar, við vinnslu fréttarinnar.
Tengdar fréttir Þurftu að kaupa gögn um sjúkrahótel Landspítali þurfti, líkt og aðrir verktakar, að kaupa útboðsgögn um sjúkrahótel í fyrra til að öðlast upplýsingar. Framkvæmdastjóri sjúkrahótelsins segir samráð hafa átt sér stað í aðdraganda útboðs. 26. janúar 2016 07:00 Mest lesið Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Innlent Alelda bíll í Reykjanesbæ Innlent Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Innlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Innlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent Paul Watson afar ánægður með handtökuna Innlent Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Innlent Fleiri fréttir Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Sjá meira
Þurftu að kaupa gögn um sjúkrahótel Landspítali þurfti, líkt og aðrir verktakar, að kaupa útboðsgögn um sjúkrahótel í fyrra til að öðlast upplýsingar. Framkvæmdastjóri sjúkrahótelsins segir samráð hafa átt sér stað í aðdraganda útboðs. 26. janúar 2016 07:00