Játar að hafa verið í skartgripaversluninni en segir lýsingu í ákæru ranga Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 27. janúar 2016 14:53 Axel Karl leiddur fyrir dómara árið 2005 þegar hann var ákærður fyrir að ræna starfsmanni Bónus á Seltjarnarnesi. Vísir/GVA
Mál gegn þremur mönnum sem ákærðir eru fyrir aðild sína að skartgriparán í Gullsmiðjunni í Hafnarfirði þann 22. október síðastliðinn var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Mennirnir, þeir Axel Karl Gíslason, Ásgeir Heiðar Stefánsson og Mikael Már Pálsson, eiga allir langan sakaferil að baki. Tveir þeirra, þeir Axel Karl og Mikael Már, mættu við þingfestinguna í morgun og tóku afstöðu til sakarefnanna. Ásgeir Heiðar mætti ekki sökum veikinda en fyrirtaka verður í málinu í næstu viku og mun hann þá taka afstöðu til málsins. Axel Karl, sem setið hefur í gæsluvarðhaldi í rúma þrjá mánuði vegna málsins, gekkst við því við þingfestinguna að hafa verið í versluninni þegar ránið á að hafa verið framið en sagði lýsingu í ákærulið eitt, þar sem ráninu er lýst, vera ranga. Hann neitaði sök í öðrum ákæruliðum en hann er meðal annars ákærður fyrir tilraun til sérstaklega hættulegrar líkamsárásar þar sem hann á að hafa skotið úr loftbyssu á nokkra lögreglumenn. Þá er Axel Karl einnig ákærður fyrir annað skartgriparán í Gullsmiðjunni sem hann á að hafa framið þann 26. september í fyrra og tekið þaðan verðmæti fyrir 1,1 milljón króna. Mikael Már neitaði því að hafa skipulagt ránið í Gullsmiðjuna í október og að hafa tekið við þýfinu frá þeim Axeli og Ásgeiri gegn greiðslu með reiðufé og fíkniefnum. Hann var á reynslulausn þegar hann á að hafa tekið þátt í ráninu og úrskurðaði Hæstiréttur í janúar að hann skyldi afplána 240 daga efstistöðvar af tveggja og hálfs árs dómi sem hann hlaut í mars árið 2014.
Tengdar fréttir Nýtti reynslulausnina til að taka þátt í vopnuðu ráni í Hafnarfirði Maðurinn tók við þýfinu úr ráni sem framið var af tveimur mönnum, vopnuðum exi, í Gullsmiðjunni í október á síðasta ári. 7. janúar 2016 17:34 Skartgriparán í Hafnarfirði: Annar maður handtekinn með afbrotaferil og fíkniefnatengda sögu Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir manninum sem skaut að lögreglu með loftbyssu í Keflavík í gærkvöldi. 23. október 2015 14:35 Góðkunningjar lögreglu ákærðir fyrir skartgriparán Axel Karl Gíslason, Ásgeir Heiðar Stefánsson og Mikael Már Pálsson eiga allir langan sakaferil að baki og eiga langa fangelsisdóma að baki. 20. janúar 2016 14:00 Tveir til viðbótar teknir vegna skartgriparáns Tveir menn voru handteknir í gær grunaðir um aðild að vopnuðu ráni sem framið var í Gullsmiðju í Hafnarfirði þann 22. september síðastliðinn. 30. október 2015 07:00 Lögregla biðlar til almennings: Ofsaakstur og árekstur eftir hrottalegt skartgriparán í Lækjargötu Tjónið hleypur á milljónum en starfsmaður á sextugsaldri flúði grímuklædda ræningja vopnaða exi. Einn var handtekinn í gærkvöldi eftir að hafa skotið af stuttu færi á lögreglumenn úr loftbyssu. 23. október 2015 11:15 Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira
Nýtti reynslulausnina til að taka þátt í vopnuðu ráni í Hafnarfirði Maðurinn tók við þýfinu úr ráni sem framið var af tveimur mönnum, vopnuðum exi, í Gullsmiðjunni í október á síðasta ári. 7. janúar 2016 17:34
Skartgriparán í Hafnarfirði: Annar maður handtekinn með afbrotaferil og fíkniefnatengda sögu Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir manninum sem skaut að lögreglu með loftbyssu í Keflavík í gærkvöldi. 23. október 2015 14:35
Góðkunningjar lögreglu ákærðir fyrir skartgriparán Axel Karl Gíslason, Ásgeir Heiðar Stefánsson og Mikael Már Pálsson eiga allir langan sakaferil að baki og eiga langa fangelsisdóma að baki. 20. janúar 2016 14:00
Tveir til viðbótar teknir vegna skartgriparáns Tveir menn voru handteknir í gær grunaðir um aðild að vopnuðu ráni sem framið var í Gullsmiðju í Hafnarfirði þann 22. september síðastliðinn. 30. október 2015 07:00
Lögregla biðlar til almennings: Ofsaakstur og árekstur eftir hrottalegt skartgriparán í Lækjargötu Tjónið hleypur á milljónum en starfsmaður á sextugsaldri flúði grímuklædda ræningja vopnaða exi. Einn var handtekinn í gærkvöldi eftir að hafa skotið af stuttu færi á lögreglumenn úr loftbyssu. 23. október 2015 11:15