Ánetjandi og útsmogin brögð Zuckerbergs Jakob Bjarnar skrifar 28. janúar 2016 10:05 Jónas er fastur í þessu paranormalíseraða partýi Zuckerbergs og kemst ekki út. „
Ég hef starfað sem forritari í tæp 16 ár meira og minna. Ég hef verið ástríðufullur tölvunörd í circa 28 ár. Engu að síður hefur það núna tekið mig 3 atrennur að reyna að slökkva á öllum Facebook hljóðum og blikkandi notifications í tækjunum mínum,“ tilkynnir Jónas Sigurðsson tónlistarmaðurinn snjalli vinum sínum á Facebook. Hann segir nei. En já við umleitan blaðamanns Vísis um að fara nánar í saumana á þessu athyglisverða fyrirbæri. Enda um þjóðþrifamál að ræða, jafnvel alheimsþrifamál. Fyrir liggur að Facebook er ánetjandi fyrirbæri, og vísvitandi svo og gott betur; fólki er ekki gert það auðvelt að losna úr viðjunum. Meta má það sem svo að 90 prósent Íslendinga noti Facebook reglulega, þar af 74 prósent daglega.Nánast vonlaust að slökkva á trufluninniJónas segist hafa séð skýrt í þessu ferli, þá er hann reyndi að slökkva á hinu einkennandi pípi sem gefur fólki til kynna að eitthvað sé að gerast á Facebook, sem er svo til þess fallið að draga menn í forritið, hvernig kerfið er hannað til að gera þér erfitt að fjarlægja þessa truflun úr lífi þínu. „Viðskiptamódel Facebook byggist á því að allir séu með krónískan athyglisbrest í messengernum eða að bregðast við einhverju taggi sem datt inn í "feedið". Það má ekki vera auðvelt að slökkva bara á trufluninni,“ segir Jónas og telur það grátbroslega kaldhæðni að hann skuli kvarta undan þessu einmitt á Facebook. Það er fullkomnað. Nútíminn er trunta, segir Jónas brosandi og vitnar í Þursaflokkinn.Útsmogin hönnunHönnunin á Facebook er útsmogin, allir fítusar útpældir og miða að því að gera notendur háða og allt gert til að gera fólki erfitt fyrir að losna. „Ég skellti þessu fram í uppgjöf eftir að hafa barist við kerfið svona lengi,“ segir Jónas og brosir. „En, í alvöru. Þá er þetta svona. Mjög markvisst og fókuserað. Til dæmis: Ef maður fer í Facebook Messenger á Android og ætlar að slökkva á notification. Þá segir: "1 klst, 2 klst, eða einn dag?" Eitthvað svona. Það er ekki í boði að slökkva bara.“ Jónas segir það algerlega fyrirliggjandi að vísvitandi sé þetta lagt upp sem þvælið og flókið og mönnum gert illmögulegt að bregðast við því. „Algjörlega. Það er augljóst. Meira að segja fyrir mig sem vinn við að forrita. Annað dæmi... Browser notifications í Chrome. Það er bara eins og tölvan verði andsetin á eftir.“Zuckerberg er þá væntanlega með hersveit atferlis- og sálfræðinga á sínum snærum auk þess sem hann er með forritara sem markvisst gera fólki erfitt með að bregðast við?„Við skulum orða það þannig að það er augljóslega hannað þannig að: a) Það er mjög erfitt að nota facebook án þess að kveikja óvart á notification, til dæmis browser í chrome eða install á messenger í síma. Og, b) Það er gríðarlega flókið að finna hvar slökkt er á þessum sömu fídusum. Tilviljun? Ég segi nei!“Engir aukvisar hjá FacebookVið erum föst í þessu paranormalíseraða partýi Zuckerbergs og fáum ekki varist? „Þegar ég var að vinna hjá Microsoft fékk ég einu sinni kynningu hjá fyrirtæki sem var búið að hanna forrit sem gat numið augnahreyfingar þegar þú varst að horfa á eitthvað á skjá. Þannig gátu þeir lesið ómeðvituð viðbrögð þín. Því augun eru beintengd inn í heilann.“Þannig að þetta með að kortleggja notendur er komið miklu miklu lengra en flestir gera sér grein fyrir; þetta með að gera fólk háð þessu? „Þú ert allavega ekki að eiga við neina aukvisa þarna hjá Facebook. Fyrirtæki með 12.000 starfsmenn,“ segir Jónas. „Og, mörgum gömlum tækninördum finnst sorglegt að eftir alla byltinguna í upplýsingatækni, opið net, opna staðla þá hefur eitthvert bandarískt stórfyrirtæki nánast yfirtekið netið. Og þar er ekki „fair game“ í gangi. Eins og þú sérð með þessi dæmi sem við erum að tala um. Og hvernig ég sem tónlistarmaður fjarlægist hægt og rólega hópinn minn á Facebook nema að kaupa "Sponsored" tilkynningar. Allt samkvæmt hinu guðdómlega plani.“Netfrelsið fýkur fyrir lítiðFrelsið sem netinu átti að fylgja fauk þannig fyrir lítið. Ekki er hægt að sleppa tónlistarmanninum góða án þess að þýfga hann um hvort eitthvað væri í pípunum, þá hvað tónlist varðar frá Jónasi og hans fólki? „Ég vonast ég til að gera eitthvað á þessu ári. Við tókum upp live plötu í nóvember í fyrra og erum að vinna hana. Það er mjög spennandi því mig langar að koma tónleikabandinu á plötu, eins og bandið getur verið upp á sitt besta. Svo er ég að dunda við nýtt efni. Alltaf. Það mjakast hina réttu leið.“Ég hef starfað sem forritari í tæp 16 ár meira og minna. Ég hef verið ástríðufullur tölvunörd í circa 28 ár. Engu að sí...Posted by Jónas Sigurðsson on 27. janúar 2016
Tengdar fréttir Hvernig Facebook gerir 360 gráðu myndbönd Mark Zuckerberg birti skemmtilegt myndband um gerð myndbanda. 22. janúar 2016 10:42 Zuckerberg naut þess að spila Gunjack frá CCP Stofnandi Facebook fagnar útkomu nýrra sýndarveruleikagleraugna með því að spila íslenskan tölvuleik. 23. nóvember 2015 10:51 Fjölskylda „Klukkudrengsins“ vill tvo milljarða og afsökunarbeiðni Strákurinn sem var handtekinn þegar hann mætti með klukku í skólann ætlar sér ekki að fara tómhentur frá þessu öllu saman. 24. nóvember 2015 16:39 Zuckerberg hrósað fyrir svar sitt á Facebook Mark Zuckerberg svaraði konu sem hafði í gríni hvatt barnabörn sín til að fara á stefnumót með nördum í skólanum þar sem einhver þeirra gæti reynst „næsti Zuckerberg“. 4. janúar 2016 18:32 Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Fleiri fréttir Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Sjá meira
Hvernig Facebook gerir 360 gráðu myndbönd Mark Zuckerberg birti skemmtilegt myndband um gerð myndbanda. 22. janúar 2016 10:42
Zuckerberg naut þess að spila Gunjack frá CCP Stofnandi Facebook fagnar útkomu nýrra sýndarveruleikagleraugna með því að spila íslenskan tölvuleik. 23. nóvember 2015 10:51
Fjölskylda „Klukkudrengsins“ vill tvo milljarða og afsökunarbeiðni Strákurinn sem var handtekinn þegar hann mætti með klukku í skólann ætlar sér ekki að fara tómhentur frá þessu öllu saman. 24. nóvember 2015 16:39
Zuckerberg hrósað fyrir svar sitt á Facebook Mark Zuckerberg svaraði konu sem hafði í gríni hvatt barnabörn sín til að fara á stefnumót með nördum í skólanum þar sem einhver þeirra gæti reynst „næsti Zuckerberg“. 4. janúar 2016 18:32