Nýlistasafnið, Kling og Bang og Ólafur Elíasson í Marshall-húsið við Grandagarð Atli Ísleifsson skrifar 29. janúar 2016 08:31 Gamla síldarbræðslan við Grandagarð svokallaða hefur einnig gengið undir nafninu Marshall-húsið. Mynd/Reykjavíkurborg
Nýlistasafnið, Kling og Bang og vinnustofa og sýningarrými Ólafs Elíassonar munu næsta haust flytja í Marshall-húsið, eða Gömlu síldarbræðsluna, sem stendur við Grandagarð. Borgarráð samþykkti í gær að heimila Reykjavíkurborg að gera samning við HB Granda um leigu á húsnæðinu til fimmtán ára og mun borgin framleigja fyrrnefndum aðilum. Á sama tíma verður opnaður veitingastaður á jarðhæð hússins með sérstaka áherslu á sjávarfang. Fagnaðarefni Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir það vera mikið fagnaðarefni að samstarf hafi tekist um öfluga menningarstarfsemi í Marshall húsinu. „HB Grandi mun ráðast í endurgerð hússins af myndarbrag þannig að húsið verður sannkölluð borgarprýði. Reykjavíkurborg kemur að málinu með því að leigutryggja verkefnið. Það sem skiptir þó mestu máli er að náðst hefur samstarf við þrjá spennandi og kraftmikla samstarfsaðila á myndlistarsviðinu sem áttu ákveðið frumkvæði að verkefninu. Það mun tryggja að Marshall húsið verður eitt mest spennandi myndlistar- og menningarhús borgarinnar og þó víðar væri leitað,“ segir Dagur. Svona lítur húsið út að innan á annarri hæð en þar mun verða umfangsmikil listastarfsemi. Á fyrstu hæð verður hins vegar veitingahús sem sérhæfir sig í sjávarfangi.Mynd/reykjavíkurborg Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að árið 1948 hafi Reykjavíkurbær og hlutafélagið Kveldúlfur stofnað með sér sameignarfélagið Faxa sf. um byggingu nýrrar síldarverksmiðju í Örfirisey. „Bygging verksmiðjunnar hófst árið 1948 og var að hluta fjármögnuð með Marshall aðstoð Bandaríkjanna eftir stríð og er nafn hússins því þaðan komið. Verksmiðjan var í notkun í um hálfa öld en hefur staðið auð undanfarin ár,“ segir í tilkynningunni. Nánar má lesa um málið á vef Reykjavíkurborgar.
Mest lesið Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Pútín sló öll met Erlent Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Innlent Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Innlent Fleiri fréttir Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Sjá meira