Sagði auðveldara fyrir kýr að fá læknaþjónustu en mannfólk Samúel Karl Ólason. skrifar 11. janúar 2016 22:54 Frá fundinum.
Tæplega 400 manns mættu á íbúafund á Hvolsvelli í kvöld vegna skerðingar á þjónustu heilsugæslunnar þar í bæ. Um mikið hitamál er að ræða, þar sem fækka opnunardögum á Heilsugæslustöðinni á Hvolsvelli, til að bæta frekar heimaþjónustu í Rangárþingi. Á vef Rangárþings Eystra segir að á frummælendaskrá hafi verið þau Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri, Guðmundur Svavarsson, framleiðslustjóri SS og íbúi, og Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Fundarstjóri var Óskar Magnússon. „Herdís fræddi fundargesti um ástæður fyrir færri opnunardögum á Heilsugæslustöðinni á Hvolsvelli en sú lokun er tilraun til að bæta frekar heimaþjónustu í Rangárþingi. Fyrirhugað er að halda þessu til streitu fram á vor og kanna þá hvernig til hefur tekist.“ Eftir að frummælendur luku máli sínu var orðið laust og munu margir hafa tekið til máls. Þau Herdís, Hjörtur Kristjánsson, framkvæmdastjóri lækninga, og Anna María Snorradóttir, framkvæmdastjóri Hjúkrunar, sátu fyrir svörum. Á vefnum segir að sveitarstjórnarfólki hafi verið tíðrætt um lélega upplýsingaveitu og erfiðleika í samskiptum við forstjóra. Þá hafi þeir og íbúar lýst yfir furðu á fækkun opnunardaga þegar íbúum fjölgi og fjöldi ferðamanna aukist stöðugt. Þá var einnig mikið rætt um þjónustu heilsugæslunnar utan dagvinnutíma. Bjarni Böðvarsson sagði stutta sögu sem þótti varpa skýrasta ljósinu á stöðu mála, samkvæmt vef Rangárþings eystra. Þar kom fram að það væri auðveldara fyrir veika kýr að fá læknaþjónustu í heimabyggð utan hefðbundins tíma en mannfólkið. Sú saga uppskar dynjandi lófatak. „Ljóst var að þetta er mikið hitamál og ekki hægt að komast að niðurstöðu á einum fundi. Framkvæmdastjórn HSu tekur það þó með sér að íbúum í sveitarfélaginu stendur ekki á sama um sín heilsugæslumál og vilja upplýsingar og fræðslu um þær ákvarðanir sem teknar eru.“ Ísólfur Gylfi afhenti Herdís undirskriftarlista sem 652 höfðu skrifað undir, þar sem óskað er eftir að skerðing á opnunartímum Heilsugæslunnar á Hvolsvelli verði tekin til baka.
Tengdar fréttir Íbúar á Hvolsvelli óánægðir með skerta heilsugæsluþjónustu Halda á íbúafund á Hvolsvelli á mánudag vegna óánægju með skertan opnunartíma heilsugæslunnar í bænum. 9. janúar 2016 07:00 Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira
Íbúar á Hvolsvelli óánægðir með skerta heilsugæsluþjónustu Halda á íbúafund á Hvolsvelli á mánudag vegna óánægju með skertan opnunartíma heilsugæslunnar í bænum. 9. janúar 2016 07:00