Harmar að sveitarstjórinn hafi ekki komið öllum upplýsingum til skila sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 12. janúar 2016 21:41 Forstjóri HSU segir sveitarstjóra Rangárþings eystra ekki hafa komið upplýsingum til íbúa að um tímabundna breytingu á opnunartímum heilsugæslunnar á Hvolsvelli væri að ræða. vísir/hsu/pjetur
Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, segist harma það ef breytingar á opnunartíma heilsugæslunnar á Hvolsvelli hafi valdið íbúum óvissu eða skapað kvíða. Hún segir Ísólf Gylfa Pálmason, sveitarstjóra Rangárþings eystra, ekki hafa komið upplýsingum til íbúa að um tímabundna breytingu væri að ræða og að ekki til stæði að loka á Hvolsvelli. Það harmi hún fyrst og fremst.652 skoruðu á HSU Tæplega fjögur hundruð manns mættu á íbúafund á Hvolsvelli í gærkvöldi vegna skerðingar á þjónustu heilsugæslunnar þar í bæ. Ísólfur afhenti þar Herdísi undirskriftalista með 652 nöfnum, þar sem þess var krafist að skerðing á opnunartímum heilsugæslunnar yrði tekin til baka. Í yfirlýsingu frá Herdísi segir að breyting á opnunartíma á Hvolsvelli væri til vorsins 2016 og að alls ekki stæði til að loka. Það hafi frá upphafi verið tekið skýrt fram og sveitarstjórnarmenn beðnir um að koma því skýrt til skila. Tilgangurinn hafi fyrst og fremst verið að efla þjónustu í heimahjúkrun, enda hafi viðtalstímum hjá læknum ekki verið fækkað og full mönnun lækna við stöðuna. „Engin skerðing hefur átt sér stað á þjónustu heilsugæslunnar í Rangárþingi en frekar verið bætt í grunnþjónustuna með sömu mönnun og áður. Hins vegar hefur opnunartíma verið breytt þannig að á þriðjudögum og föstudögum þarf að sækja viðtal til heimilislæknis á Hellu,“ segir Herdís.Ísólfur Gylfi Pálmason sveitarstjóri.vísirGreiðfær leið milli íbúakjarna Hún segir íbúa Rangársþings búa við eitt allra besta aðgengi að heilsugæslulæknum sem þekkist á landinu og biðtíma með því stysta sem þekkist á landinu öllu. Um sextíu prósent þeirra íbúa sem leiti til heilsugæslunnar í Rangárþingi fái viðtalstíma hjá heilsugæslulækni samdægurs eða næsta dag. Fáir íbúar á Suðurlandi búi við betra aðgengi að læknisþjónustu en þeir sem leiti til heilsugæslunnar í Rangárþingi, á Hellu eða Hvolsvelli. „Milli þessara tveggja íbúakjarna í sýslunni er 13 km greiðfær leið. Auk þess hefur á undanförnum árum verið byggð upp viðbótar hjúkrunarþjónusta þannig að ávallt er tryggt að þeir íbúar sem leita til heilsugæslunnar geta fengið viðtal hjá hjúkrunarfræðingi ef ekki er hægt að bóka tíma hjá lækni samdægurs.“ Þá segist hún fagna því að sveitarstjórn Rangárþings eystra kalli eftir faglegu samráði við íbúa enda sé það markmið HSU að leita allra leiða til að bæta gæði og öryggi í almennri heilbrigðisþjónustu.
Tengdar fréttir Sagði auðveldara fyrir kýr að fá læknaþjónustu en mannfólk Um 400 manns mættu á íbúafund á Hvolsvelli vegna skerðingar á þjónustu heilsugæslunnar. 11. janúar 2016 22:54 Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira
Sagði auðveldara fyrir kýr að fá læknaþjónustu en mannfólk Um 400 manns mættu á íbúafund á Hvolsvelli vegna skerðingar á þjónustu heilsugæslunnar. 11. janúar 2016 22:54