Innlent

Hæstiréttur staðfestir fjögurra ára fangelsisdóm vegna árásarinnar í Grundarfirði

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Árásin átti sér stað í Grundarfirði sumarið 2014.
Árásin átti sér stað í Grundarfirði sumarið 2014. vísir/vilhelm
Hæstiréttur hefur staðfest fjögurra ára fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjaness yfir Reyni Þór Jónassyni fyirr stórfellda líkamsárás í Grundarfirði í júlí 2014.

Reyni var gefið að sök ásamt öðrum manni, Carsten Staffelde, sem einnig hlaut fjögurra ára fangelsisdóm í héraði, að hafa ráðist á íslenskan karlmann á þrítugsaldri þann 17. júlí 2014. Báðir neituðu þeir sök í málinu, en myndbandsupptaka staðfesti hluta árásarinnar.

Reynir og Carsten voru skipverjar á togaranum Baldvin NC100 sem lagst hafði að höfn í Grundarfirði umrætt kvöld. Skipverjarnir flestir höfðu ákveðið að setjast að sumbli á veitingastaðnum Rúben, áður en haldið var aftur til vinnu.

Einn skipverjanna þekkti til fórnarlambsins, heimamanns, sem einnig var á fyrrnefndum veitingastað. Til einhverra orðaskipta kom og í kjölfarið upphófust slagsmál.

Slagsmálin stóðu yfir í skamman tíma, einungis nokkrar mínútur, en í nógu langan tíma til að maðurinn missti meðvitund og hlaut meðal annars alvarlegan heilaskaða. Hann missti minnið og telja læknar litlar líkur á að hann öðlist það aftur, né að hann nái sér nokkurn tímann að fullu.

Dóm Hæstaréttar má sjá hér.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×