Stjórnarmaður íbúasamtaka vill taka á eigendum Riddarans Jakob Bjarnar skrifar 6. janúar 2016 13:15 Internetið sprakk eftir að Vísir greindi frá umdeildri auglýsingu Riddarans og svo virðist sem málið muni draga dilk á eftir sér. Skjáskot af Facebook
Þuríður Ósk Gunnarsdóttir, stjórnarmaður í íbúðasamtökum Engihjalla í Kópavogi vill taka á málefnum ölstofunnar Riddarans, sem stendur við götuna. Hún segir fyrirliggjandi að forráðamenn knæpunnar séu með umdeildri auglýsingu sinni að hvetja til ofbeldis gegn konum.Vísir greindi frá því fyrir stundu að auglýsing ölstofunnar Riddarans hafi gengið fram af fólki, en með hvatningu um að menn láti nú sjá sig á barnum fylgir mynd af tjóðraðri konu í jólasveinabúningi. Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa, eiginlega má segja að netið hafi sprungið (ef tekið er óformlega til orða); fordæmingar hrannast inn á Facebooksíðu staðarins og er eigendum ekki vandaðar kveðjurnar. Talsmenn knæpunnar reyna eftir föngum að slá á létta strengi í svörum sínum en heldur er það nú til þess fallið að ausa olíu á eldinn en hitt: „Riddarinn Ölstofa Nù það er einfaldlega svo..að jòlin eru að klàrast, þà bindum við þetta allt saman. [Broskall.] hvort sem um flòkið jòlaskraut er að ræða eða bara þetta einfalda.“ Og: „Riddarinn Ölstofa Ragnhildur það er einmitt það. Það er einfaldlega alltof mikið af konum hér hjà okkur à Riddaranum -- við hreinlega erum ràðþrota.“ Þuríði Ósk Gunnarsdóttur, sem situr í stjórn íbúasamtaka Engilhjalla, henni er ekki skemmt nema síður sé. Og hún boðar til aðgerða í athugasemd sinni: „Mikið er þetta ógeðsleg auglýsing og hrokasvör frá barnum - ég bý í götunni og er í stjórn Íbúasamtaka Engihjalla og það er gersamlega gengið fram af mér! Þessi auglýsing hvetur til ofbeldis gegn konum. Ef þessu heldur áfram mun ég gera allt sem ég get mögulega gert til að reyna að koma þessum bar úr götunni!“
Tengdar fréttir Auglýsing Riddarans sögð ógeðsleg Auglýsing Ölstofunnar Riddarans í Kópavogi vekur upp almenna hneykslan á Facebook. 6. janúar 2016 11:59 Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Ætla að brenna rusl og skapa orku Innlent Fleiri fréttir Wolt kærir hótanir sendlanna til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Sjá meira
Auglýsing Riddarans sögð ógeðsleg Auglýsing Ölstofunnar Riddarans í Kópavogi vekur upp almenna hneykslan á Facebook. 6. janúar 2016 11:59