Innlent

Olíutankar komnir á aldur í Varmahlíð

Sveinn Arnarson skrifar
Farið er í vinnuna vegna slyss síðastliðið sumar þegar olíuflutningabifreið fór út af þjóðveginum í Skagafirði. Myndin er frá slysi í Ísafjarðardjúpi árið 2012.
Farið er í vinnuna vegna slyss síðastliðið sumar þegar olíuflutningabifreið fór út af þjóðveginum í Skagafirði. Myndin er frá slysi í Ísafjarðardjúpi árið 2012. vísir/hafþór
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra vinnur nú að því að fara yfir stöðu olíutanka í Skagafirði. Ný reglugerð gerir ráð fyrir að olíutankar megi ekki vera eldri en 25 ára gamlir. Eftir það geti þeir verið varasamir og olía lekið út frá þeim.

„Til að mynda eru olíutankar í Varmahlíð komnir á aldur en hafa staðist þrýstiprófanir fram að þessu. Við könnum stöðu þeirra reglulega og það má segja að þeir séu á skilorði,“ segir Sigríður Hjaltadóttir heilbrigðisfulltrúi.

Heilbrigðiseftirlitið vinnur nú áhættumat vegna olíuflutninga á vegum í umdæminu. Er farið í þessa vinnu vegna slyss síðastliðið sumar þegar olíuflutningabifreið fór út af þjóðveginum í Skagafirði. „Rétt við Varmahlíð varð alvarlegt slys sem hefði getað endað mun verr. Með þessari vinnu erum við að reyna að ná utan um tíðni og magn olíuflutninga í umdæminu og meta líkur á slysum,“ segir Sigríður.

„Olíumengun getur haft alvarlegar afleiðingar á Norðurlandi vestra þar sem eru veiðiár og vötn, vatnslindir og önnur náttúra sem við þurfum að hlúa að. Því er mikilvægt að við gerum okkur grein fyrir vandanum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×