„Þetta er bara hættulegt“ Óli Kr. Ármannsson skrifar 23. maí 2016 07:00 Í bát Ribsafari er setið á hörðum miðjustokki bátsins og getur því reynt á þegar hann skellur á mikilli ferð í sjóinn. Fréttablaðið/Óskar P. Friðriksson
Skýrslu er tæpast að vænta fyrr en í haust frá rannsóknarnefnd sjóslysa vegna slyss þar sem tvær konur hryggbrotnuðu um borð í harðbotna slöngubát ferðaþjónustufyrirtækis í Vestmannaeyjum í síðustu viku. Ingi Tryggvason, formaður rannsóknarnefndarinnar, segir svona slys hafa átt sér stað áður. „Ég man eftir tveimur málum, einu á Húsavík og öðru í Vestmannaeyjum,“ segir Ingi. Í skýrslu nefndarinnar vegna slyss þegar kona hryggbrotnaði í eins bát Ribsafari í Vestmannaeyjum sumarið 2011 segir að um sé að ræða mjög varhugaverðar siglingar. „Nefndin telur því fyllstu ástæðu til að endurskoða útbúnað þessara báta og gæta mun betur að öryggi farþega.“ Ingi segir ferðirnar virðast snúast um að sigla nógu hart og stökkva fram af öldum. Við þetta geti orðið mjög mikið högg sem farþegar séu misvel á sig komnir til að taka. „Þetta er bara hættulegt,“ segir hann. Fram kom í umfjöllun RÚV um málið að konurnar væru á þrítugsaldri, en atvikið hefði átt sér stað þegar um 100 starfsmenn Bláa lónsins voru í vorferð til Vestmannaeyja. Meðal uppákoma sem boðið var upp á í ferðinni hefði verið bátsferð með Ribsafari. Haft er eftir lögmanni Ribsafari að atvikið hafi verið tilkynnt til Vinnueftirlits og lögreglu sem nú rannsaki málið.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 23. maí.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira