Sex mánaða nálgunarbann fyrir ítrekuð ofbeldis- og kynferðisbrot sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 23. maí 2016 17:08 Manninum er gefið að sök að hafa beitt sambýliskonu sína margvíslegu ofbeldi árum saman. Þá er hann sagður hafa beitt börn sín líkamlegu ofbeldi. vísir/getty
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um nálgunarbann yfir karlmanni sem gert er að halda sig fjarri barnsmóður sinni í sex mánuði. Konan dvelur nú í Kvennaathvarfinu ásamt tveimur börnum sínum vegna ítrekaðra ofbeldisbrota af hálfu mannsins allt frá árinu 2007. Manninum er gefið að sök að hafa brotið gegn konunni kynferðislega, ráðist á hana með sérstaklega hættulegri aðferð, beitt hana ólögmætri nauðung og hótað henni ofbeldi, brotið gegn börnum hennar og ítrekað raskað friði hennar. Áhættumatsteymi lögreglustjórans kom saman vegna málsins í mars síðastliðnum eftir að konan óskaði eftir neyðarhnappi frá Securitas. Beiðni hennar var samþykkt, meðal annars með hliðsjón af því að hún glímir við fötlun sem gerir að verkum að hún gæti ekki kallað eftir aðstoð símleiðis, að því er segir í dómnum.Starfsmaður Kvennaathvarfsins óskaði eftir aðstoð Konan leitaði í Kvennaathvarfið í mars síðastliðnum og kvaðst hafa orðið fyrir ofbeldi af hálfu maka; andlegu, líkamlegu og kynferðislegu. Þá hafi maðurinn einnig beitt sex ára son þeirra líkamlegu ofbeldi. Starfsmaður Kvennaathvarfsins tilkynnti lögreglu um málið en konan hafði ekki viljað gefa skýrslu af ótta við sambýlismann sinn. Þá óttaðist hún jafnframt um öryggi barna sinna sem þá voru hjá föður sínum. Maðurinn neitaði að hafa beitt konuna ofbeldi en sagðist kannast við að hafa vísað henni á dyr. Konan gaf skýrslu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu 21. mars. Þar kærði hún manninn fyrir ítrekuð ofbeldis- og kynferðisbrot allt aftur til ársins 2007 eða 2008. Nefndi hún meðal annars að sambýlismaður hennar hafi viljað fá tiltekinn mann til þess að koma og fullnægja henni kynferðislega. Hún hafi ávallt sagt nei. Einn daginn hafi hann hótað henni því að taka íbúðina af henni og henda henni út, hún hefði þá engan stað til þess að búa á. Hafi hún þá látið undan.Borgaði karlmanni fyrir kynmök með konu sinni Í dómnum segir að maðurinn hafi komið inn á heimilið og þau þrjú lagst upp í rúm. Þar hafi maðurinn reynt að fróa henni. Henni hafi liðið illa og á endanum gert sér upp fullnægingu til þess að losna undan þessu og grátið sig í svefn á eftir. Kvað hún sambýlismanns inn hafa greitt hinum karlmanninum tólf þúsund krónur fyrir. Þá segir konan jafnframt frá því að áður en börnin hafi fæðst hafi sambandið verið mjög stormasamt. Eitt skipti hafi maðurinn farið að slást við hana, það hafi liðið yfir hana og hún fallið á borð. Er hún hafi rankað við sér hafi hún séð að maðurinn var búinn að safna fötum hennar saman og kveikja í þeim. Hún segist ítrekað orðið fyrir ofbeldi af hálfu mannsins, sem og að hann hafi ítrekað unnið spellvirki á heimili þeirra. Maðurinn er jafnframt sakaður um ofbeldi gagnvart börnum þeirra, sem eru fjögurra og sex ára. Konan segir það meðal annars hafa gerst í desember 2014 og aftur í mars síðastliðnum. Framburður sonar þeirra í Barnahúsi 10. maí, sem og ljósmyndir og læknisvottorð, styðji að maðurinn hafi sparkað í barnið. Héraðsdómur úrskurðaði að maðurinn skyldi sæta nálgunarbanni í sex mánuði þannig að lagt verði bann við því að hann komi á eða í námunda við dvalarstað konunnar, Kvennaathvarfið, og lögheimili hennar á svæði sem afmarkast við 50 metra radíus. Þá er lagt bann við því að maðurinn veiti konunni eftirför, nálgist hana á almannafæri eða setji sig í samband við hana með öðrum hætti, þar á meðal tölvu- og símasamskiptum. Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms í dag.
Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi Innlent Fleiri fréttir „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Sjá meira