Grunnur að bústað í þjóðgarðinum á Þingvöllum falur á 85 milljónir fanney birna jónsdóttir skrifar 16. júlí 2016 07:00 Bústaðurinn verður engin smásmíði eins og dæma má af grunninum og kjallaranum sem bíður steyptur nýs eiganda. Mynd/Fasteignamarkaðurinn Mynd/Skjáskot af auglýsingu Fasteignamarkaðarins
Grunnur að 159 fermetra sumarhúsi á besta stað við vatnið í Þingvallaþjóðgarði er nú til sölu hjá Fasteignamarkaðnum. Það eru hjónin Sólveig Lára Magnúsdóttir og Bogi Pálsson, oft kenndur við Toyota, sem eru að selja. Eignin er við Valhallarstíg nyrðri á bakka Þingvallavatns og stendur á þrjú þúsund fermetra leigulóð í eigu ríkisins. „Gert er ráð fyrir um 80 fermetra verönd vatnsmegin við húsið og frá henni og stofum má njóta einstaks útsýnis yfir Þingvallavatn og fjallahringinn,“ er myndin sem dregin er upp af aðstæðum í sölulýsingu Fasteignamarkaðarins.Þessi hlið mun snúa að Þingvallavatni.Mynd/TektonÓskað er tilboða en Guðmundur Th. Jónsson fasteignasali segir verðhugmynd fyrir grunninn vera í kringum 85 milljónir. Fram kemur í auglýsingunni að efri hæð hússins verði 134 fermetrar og byggð úr timbri. „Er gert ráð fyrir forstofu, holi, svefngangi, barnaherbergi, hjónaherbergi og öðru baðherbergi auk stórra stofa og eldhúss. Fyrirliggjandi teikningar gera ráð fyrir að húsið verði klætt að utan með varanlegri og vandaðri klæðningu, svo sem með kopar. Gert er ráð fyrir allt að 5,0 metra lofthæð í hluta efri hæðar hússins,“ er fyrirhugðu húsi nánar lýst. Sérinngangur er í kjallara þar sem vera á tæknirými og geymsla auk þess sem Fasteignamarkaðurinn segir að mögulegt væri að innrétta hluta kjallarans. Grunnur sumarhússins stendur á lóðinni þar sem áður stóð sumarhús í eigu athafnakonunnar Sonju Zorilla sem síðar seldi eignina Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands. Ástríður, dóttir Vigdísar, eignaðist húsið í nóvember 2006 og seldi það eftir þrjá daga til hjónanna Aðalsteins Egils Jónassonar og Ásdísar Höllu Bragadóttur, fyrrverandi bæjarstjóra í Garðabæ. Bogi og Sólveig keyptu síðan eignina í mars 2006. Strangar reglur gilda um stærð húsa innan þjóðgarðsins.Valhallastígur nyrðri 7 hefur verið í eigu Sonju Zorillu og Vigdísar Finnbogadóttur.Þó er heimilt að reisa hús á eldri lóðum jafnstór þeim sem fyrir voru. Bogi og Sólveig létu rífa húsakostinn og fengu samþykktar teikningar að nýrri 159 fermetra byggingu. Á meðan á uppsteypu grunnsins og kjallarans stóð í aðdraganda bankahrunsins 2008 vakti athygli að notast var við þyrlur til að koma steypunni á staðinn líkt og átti við um framkvæmdir við nýtt hús Bakkavararbróðurins Ágústs Guðmundssonar þar rétt hjá. Enginn akvegur er að þessum lóðum. Ólíkt því sem á við um hús Ágústs Guðmundssonar, sem lokið var við nokkrum árum eftir hrunið, hefur lítið verið aðhafst í húsi Boga og Sólveigar. Meðal annarra eigenda nærliggjandi húsa á Valhallarstíg nyrðri má nefnda hjónin Birgi Þór Bieltvedt og Eygló Björk Kjartansdóttur, hjónin Eyþór Arnalds og Dagmar Unu Ólafsdóttur, hjónin Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur og Friðrik Hallbjörn Karlsson og hjónin Vilhjálm Egilsson og Ragnhildi Pálu Ófeigsdóttur.
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Innlent Sumarveður fyrir sunnan en annars staðar skýjað Veður Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Fleiri fréttir Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Sjá meira