Guðni við Kristófer: Sorrí. My bad Stefán Árni Pálsson skrifar 1. september 2016 10:31 Kristófer fær afsökunarbeiðni frá Guðna Th.
Kristófer Acox, landsliðsmaður í körfubolta, greindi frá skondnu atviki sem kom upp fyrir leik Íslands og Sviss í gær á Twitter-síðu sinni eftir glæsilegan 16 stiga sigur strákanna, 88-72. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, heilsaði honum á ensku fyrir leikinn en öllum öðrum leikmönnum liðsins á íslensku. „Allir í liðinu fengu „gangi ykkur vel“ frá Guðna forseta nema kallinn. Ég fékk „good luck.“ Annars geðveikur stuðningur í kvöld. Áfram Ísland,“ skrifaði Kristófer á Twitter-síðu sína í gærkvöldi. Guðni svarar Kristófer á Twitter í dag: „Gangi þér vel, rosalega vel. Sorrí, fékk í kollinn hér nýr liðsmaður, ekki með íslensku 100%. My bad. Kemur ekki fyrir aftur,“ segir forseti Íslands við landsliðsmanninn í körfubolta. Sjá einnig: Allir fengu „Gangi þér vel“ frá Guðna forseta nema Kristófer Acox sem fékk „Good luck“Guðni Th. var heiðursgestur á leiknum en faðir hans, Jóhannes Sæmundsson, var aðstoðarþjálfari Einars Bollasonar þegar Ísland vann Sviss í fyrsta og eina skiptið í landsleik árið 1981. Annar sigurinn datt svo inn í gær. Guðni heilsaði fyrst leikmönnum Sviss ásamt Sigurði Inga Jóhannssyni, forsætisráðherra, og gekk svo á íslensku línuna þar sem hann óskaði öllum strákunum okkar velfarnaðar í leiknum. Kristófer hafði húmor fyrir þessum ruglingi forsetans en aðspurður eftir Twitter-færsluna hvernig hann svaraði Guðna Th. sagði Kristófer: „Thanks bruh.“@krisacox Gangi þér vel, rosalega vel. Sorrí, fékk í kollinn hér nýr liðsmaður, ekki með íslensku 100%. My bad. Kemur ekki fyrir aftur :)— Guðni Jóhannesson (@sagnaritari) September 1, 2016
Körfubolti Mest lesið Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Handbolti Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Fótbolti Umboðsmaður hótaði leikmanni með byssu Fótbolti Alfreð klæddist kvennatreyjunni á leiknum við Ísland Handbolti Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Körfubolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Meistaradeildinni Sport Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Körfubolti Emilía opnaði markareikninginn gegn Ingibjörgu Fótbolti O'Neil tekur ekki við Úlfunum á ný Fótbolti Yfirburðir Sunderland dugðu ekki til sigurs Enski boltinn Fleiri fréttir Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Íslandsmeistararnir mæta bikarmeisturunum Skagamenn senda Kanann heim Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Ólíkar niðurstöður hjá landsliðsmönnunum Er Tóti Túrbó ofmetinn? „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Góður lokaleikhluti tryggði Njarðvík sigurinn Styrmir með þrettán í öruggum sigri Zamora Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna Diljá stórkostleg í lokin í endurkomu í Hveragerði „Einn af bestu leikmönnunum í sögu íslensks körfubolta“ Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Blikar áfram með fullt hús stiga ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum „Bara feginn að við fundum þó leið“ Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum „Við þurfum að vera betri varnarlega“ Íslenski körfuboltinn og Grindavík verðlaunuð NBA-leikmaður með krabbamein Haukur Helgi: Höfum ekki verið að spila góðan körfubolta „Getum verið fjandi góðir“ Uppgjörið: Álftanes-Njarðvík 93-92 | Heitur Haukur var hetjan á Álftanesinu Uppgjörið: Keflavík - Þór Þ. 86-82 | Þarf ekki alltaf að vera fallegt ef það virkar „Varnarleikur snýst eiginlega bara um að nenna“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 55-90 | Taplausir Grindvíkingar kjöldrógu Val Sjá meira