Framkvæmdastjórum bar að afla leyfis stjórnar Þórdís Valsdóttir skrifar 27. apríl 2016 07:00 Forstjóri FME segir að tilkynning um viðskipti með aflandsfélög nægi ekki. vísir/Vilhelm
Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir að ekki nægi fyrir framkvæmdastjóra lífeyrissjóðs að tilkynna viðskipti með aflandsfélög til stjórnar lífeyrissjóðsins. Samkvæmt lögum ber honum að afla leyfis stjórnar. Í lögunum er einnig tekið fram að eignarhlutur í fyrirtæki teljist þátttaka í atvinnurekstri nema um sé að ræða óverulegan hlut sem ekki veitir bein áhrif á stjórn þess.Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Fréttablaðið/Ernir„Komi upp það tilvik að framkvæmdastjóri lífeyrissjóðs stofni eða kaupi verulegan eignarhlut í fyrirtæki er honum því skylt að leita fyrirfram samþykkis stjórnar fyrir viðskiptum,“ segir Unnur Gunnarsdóttir. Í umfjöllun Kastljóss á mánudag kom fram að tveir framkvæmdastjórar íslenskra lífeyrissjóða tengdust nokkrum aflandsfélögum. Kári Arnór Kárason, fyrrverandi framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðsins Stapa, og Kristján Örn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Sameinaða lífeyrissjóðsins, voru báðir skráðir eigendur aflandsfélaga og hvorugur þeirra aflaði leyfis stjórnar fyrir þátttöku sinni í viðskiptunum. Jón Bjarni Gunnarsson, formaður stjórnar Sameinaða lífeyrissjóðsins, sagði í samtali við mbl.is að hann teldi ekki víst að Kristján Örn hafi gerst brotlegur með því að tilkynna stjórninni ekki um félögin. Staða Kristjáns Arnar verður rædd á stjórnarfundi lífeyrissjóðsins í dag.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 27. apríl.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Fleiri fréttir Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Sjá meira