Fyrsti músliminn sem verður borgarstjóri í Evrópu Birta Björnsdóttir skrifar 7. maí 2016 20:00
Sadiq Khan verður næstu borgarstjóri Lundúnaborgar eftir afgerandi sigur í kosningunum í gær. Khan, sem er frambjóðandi Verkamannaflokksins, hlaut 57% greiddra atkvæða á meðan keppinautur hans, Zac Goldsmith, frambjóðandi Íhaldsflokksins, hlaut 43% atkvæða. Aldrei hefur embættismaður náð kjöri með jafn mikið fylgi og Kahn í stjórnmálasögu Bretlands. Sigur hans bindur enda á átta ára valdatíð íhaldsflokksins í ráðhúsinu undir stjórn Boris Johnson. Kahn verður þriðji borgarstjóri Lundúna. Hann er þingmaður og fyrrverandi ráðherra Verkamannaflokksins. Foreldrar hans eru pakistanskir innflytjendur, móðir hans er saumakona og faðir hans strætóbílstjóri. Kahn er einn átta barna þeirra og verður fyrsti músliminn til að gegna embætti borgarstjóra í evrópskri höfuðborg. „Ég er stoltur og hreykinn af mörgu. Ég er yfir mig stoltur af að vera íslamstrúar. Ég er mjög stoltur af að vera frá Suður-Lundúnum. Ég er stoltur af að vera faðir, eiginmaður og langþjáður aðdáandi Liverpool, af asískum uppruna og af pakistönskum ættum. Við erum öll af ólíkum uppruna og ein ástæða þess að Lundúnir er merkasta borg veraldar er að maður getur verið sá sem maður er," sagði nýkjörinn borgarstjóri í London. Reiknað var með að Verkamannaflokkurinn fengi slæma útreið í kosningunum sem yrði prófsteinn á stöðu Jeremy Corbyn, formanns flokksins. Stjórnmálaskýrendur telja að Corbyn hafi rétt sloppið fyrir horn eftir góðan árangur flokksins í London og Wales þó að hann hafi goldið afhroð í Skotlandi.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Fleiri fréttir Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Sjá meira