Innlent

Maður í vímu sló til níu ára drengs á Laugavegi

Atli Ísleifsson skrifar
Rætt verður við hann þegar af honum rennur.
Rætt verður við hann þegar af honum rennur. Vísir/Anton
Tilkynnt var um líkamsárás til lögreglu skömmu fyrir klukkan 17 þar sem maður í vímu gekk á fólk á Laugavegi og lamdi.

Í dagbók lögreglu segir að maðurinn hafi meðal annars slegið níu ára dreng.

Maðurinn var handtekinn á veitingastað á Frakkastíg og færður í fangageymslu.

Rætt verður við hann þegar af honum rennur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×