Innlent

Háskóli Íslands í 131. til 140. sæti yfir bestu háskóla Evrópu

Atli Ísleifsson skrifar
Þetta er í fyrsta sinn sem sérstakur listi yfir 200 bestu háskóla Evrópu sé gefinn út.
Þetta er í fyrsta sinn sem sérstakur listi yfir 200 bestu háskóla Evrópu sé gefinn út. Vísir/Anton
Háskóli Íslands er í 131. til 140. sæti yfir bestu háskóla Evrópu samkvæmt nýjum matslista Times Higher Education European Top 200 Rankings sem birtur var í dag.

Í frétt á vef HÍ segir að þetta sé í fyrsta sinn sem sérstakur listi yfir 200 bestu háskóla Evrópu sé gefinn út.

„Háskóli Íslands hefur verið undanfarin fimm ár á lista tímaritsins Times Higher Education yfir bestu háskóla heims (Times Higher Education World University Rankings) og var í sæti 251-275 á lista sem birtur var haustið 2015. Um 17 þúsund háskólar eru í heiminum sem þýðir að Háskóli Íslands er meðal efstu tveggja prósenta háskóla á heimsvísu. 

Listi Times Higher Education yfir bestu háskóla Evrópu byggist á sömu þáttum og gögnum og liggja til grundvallar listanum á heimsvísu, þar á meðal rannsóknastarfi, áhrifum á alþjóðlegum vettvangi, kennslu og námsumhverfi. Rannsóknir eru metnar á grundvelli fjölda vísindagreina sem birtast í virtum alþjóðlegum vísindatímaritum og gæði þeirra og áhrif eru mæld með fjölda tilvitnana. Þar stendur Háskóli Íslands best að vígi samkvæmt mati Times Higher Education,“ segir í fréttinni.

Alls eiga 22 Evrópulönd fulltrúa á lista Times Higher Education yfir bestu háskóla álfunnar. Breskir háskólar skipa sjö af efstu átta sætum listans en Háskólinn í Oxford skipar efsta sætið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×