Landhelgisgæslan og Samtök útgerða skemmtiferðaskipa í norðurhöfum stóðu í síðustu viku fyrir svokallaðri skrifborðsæfingu og ráðstefnu um leitar- og björgunaraðgerðir á norðurslóðum. Fulltrúar leitar- og björgunaraðila og útgerða skemmtiferðaskipa voru frá flestum Norðurlandanna, Bandaríkjunum og Kanada.
Tilgangur æfingarinnar var að skiptast á upplýsingum og reynslu, en sjóslys á norðurslóðum reynir mjög á getu björgunaraðila og getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir lífríki og umhverfi á hafsvæðinu og er erfitt viðureignar vegna fjarlægðar og langs viðbragðstíma.
Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri innanríkisráðuneytis, flutti ávarp í fjarveru Ólafar Nordal, innanríkisáðherra. Hún sagði mikilvægt að þessir aðilar þekktu sem gerst starfsemi og aðstæður í norðurhöfum og Landhelgisgæsluna og sagði jafnframt systurstofnanir hennar í nágrannaríkjum gegna þýðingarmiklu hlutverki. Sagði hún íslensk stjórnvöld hafa tekið þátt í viðræðum um að koma á björgunarmiðstöð á norðurslóðum sem hefði einkum það hlutverk að bregðast við vá á þeim slóðum. Því væri lykilatriði að setja upp viðbragðsáætlun og koma saman til að æfa slíka áætlun.
Æfð voru viðbrögð við atburði þegar upp kemur eldur í vélarrúmi skips með tæplega 400 manns innanborðs þegar það er statt við Jan Mayen á leið frá Íslandi til Svalbarða.
Fram kom að æfing og samhæfing sem þessi hefur ekki verið haldin áður og í sumar er ráðgert að Landhelgisgæslan æfi aðgerðir með áhöfnum nokkurra útgerða sem senda munu skip sín á norðurslóðir.
Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 18. apríl.
