Tala látinna hækkar í Ekvador Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 18. apríl 2016 00:10 Frá borginni Portoviejo í Manabí vísir/afp
Að minnsta kosti 246 létust og 2500 eru slasaðir eftir jarðskjálftann í Ekvador á laugardagskvöld. Óttast er að tala látinna eigi eftir að hækka því enn er fólk grafið í rústum víða í borgum og bæjum á norðvesturströnd landsins sem varð afar illa úti í skjálftanum. Þá hefur það tafið björgunarstörf að aurskriður hafa fallið á vegi auk þess sem samgöngumannvirki skemmdust eða jafnvel eyðilögðust. Einnig er víða rafmagnslaust og vatnslaust.Sjá einnig: Íslenskur skiptinemi í Ekvador: „Mundi það sem kennt er á Íslandi“ Upptök skjálftans voru á tæplega 20 kílómetra dýpi skammt frá bænum Muisne í héraðinu Esmeraldas. Skjálftinn var gríðarlega öflugur, eða 7,8 að stærð, og fannst ekki aðeins víða í Ekvador heldur einnig í Kólumbíu. Er þetta stærsti skjálfti í landinu í 40 ár. Flestir hinna látnu hafa fundist í héraðinu Manabí, sem er næsta hérað við Esmeraldas á norðvesturströndinni. Þar hafa 203 fundist látnir og eyðilegging í héraðinu er mikil, ekki síst í bænum Pedernales og borgunum Manta og Portoviejo. Ástandið er hvað verst í Pedernales þar sem bæjarstjórinn hefur sagt að bærinn hafi verið nánast jafnaður við jörðu í skjálftanum. Talið er enn séu hundruð manna grafnir í rústum í bænum og eftir því sem tíminn líður eru minni líkur á að finna fólk á lífi. Það þótti því vera kraftaverki líkast þegar lítil stúlka fannst á lífi í rústum í Pedernales í dag. Á myndbandinu hér að neðan má sjá eyðilegginguna eftir skjálftann í borginni Puertoviejo í Manabí.Frá borginni Pedernalesvísir/epaFrá Pedernalesvísir/epa
Tengdar fréttir 233 látnir eftir jarðskjálftann í Ekvador Óttast er að tala látinna muni hækka eftir því sem líður á. 17. apríl 2016 15:49 Íslenskur skiptinemi í Ekvador upplifði sinn fyrsta jarðskjálfta: „Mundi það sem er kennt á Íslandi“ Harður jarðskjálfri reið yfir Ekvador í nótt. Ungur Akureyringur er skiptinemi í Ekvador og fann vel fyrir skjálftanum. 17. apríl 2016 20:15 Tugir liggja í valnum eftir öflugan skjálfta í Ekvador Skjálftinn mældist 7,8 að stærð og er sá öflugasti í landinu frá árinu 1979. 17. apríl 2016 09:58 Skiptinemar AFS í Ekvador allir óhultir Alls eru fjórir íslenskir skiptinemar í landinu. 17. apríl 2016 13:09 Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Innlent Fleiri fréttir Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Sjá meira
233 látnir eftir jarðskjálftann í Ekvador Óttast er að tala látinna muni hækka eftir því sem líður á. 17. apríl 2016 15:49
Íslenskur skiptinemi í Ekvador upplifði sinn fyrsta jarðskjálfta: „Mundi það sem er kennt á Íslandi“ Harður jarðskjálfri reið yfir Ekvador í nótt. Ungur Akureyringur er skiptinemi í Ekvador og fann vel fyrir skjálftanum. 17. apríl 2016 20:15
Tugir liggja í valnum eftir öflugan skjálfta í Ekvador Skjálftinn mældist 7,8 að stærð og er sá öflugasti í landinu frá árinu 1979. 17. apríl 2016 09:58
Skiptinemar AFS í Ekvador allir óhultir Alls eru fjórir íslenskir skiptinemar í landinu. 17. apríl 2016 13:09