Fimm myndir sem sýna hversu mikið jöklar heimsins hafa hopað Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 30. janúar 2016 14:15 Mýrdalsjökull hefur hopað á undanförnum árum. NASA
Á vefsíðu NASA, Feimferðastofnunar Bandaríkjanna, kennir ýmisa grasa. Þó að stofnunin sé ef til vill best fyrir að leita út í geim beinir hún einstaka sinnum sjónum sínum að jörðinni okkar. Á síðu stofnunarinnar er sérstakur myndaþáttur sem ber nafnið Images of Change þar sem finna má 309 myndir af því hvernig maðurinn og náttúran hefur umbreytt Jörðinni í gegnum árin. Eitt af því sem hefur verið í umræðunni undanfarin ár er hversu mikið jöklar heimsins hafa hopað vegna hlýnun jarðar. Skemmst er að minnast heimsóknar Francois Hollande Frakklandsforseta hingað til lands á síðasta ári. Fór hann upp að Sólheimajökli með Ólafi Ragnari Grímssyni forseta Íslands. „Það var merkilegt að labba upp að rótum Sólheimajökuls að labba lengi eftir þessum svarta sandi og upp að steinunum og klettunum og láta hann upplifa hvernig jökullinn hefði hopað. Eitt af því sem hefði haft mest áhrif á hann sem hann hefði upplifað á síðustu árum,“ segir Ólafur Ragnar um upplifun Hollande. Á Images of Change má finna fjölmargar myndir sem sýna hversu mikið jöklar heimsins hafa hopað og við höfum tekið saman nokkrar af þeim.Qorii Kalis jökull - PerúNASAVinstri mynd tekin í júlí 1978 - Hægri mynd tekin í júlí 2011Qori Kalis er einn örfárra jökla eftir sem fyrirfinnst á hitabeltissvæði. Jökulinn er skriðjökull úr Quelccaya-jöklinum í Andes-fjöllum S-Ameríku. Jökullinn hefur hopað gríðarlega undanfarin ár og hefur nú myndaðast myndarlegt jökullón á svæði sem jökullinn náði áður yfir.Columbia-jökull - AlaskaNASAVinstri mynd tekin 28. júlí 1986 - Hægri mynd tekin 2. júlí 2014Columbia-jökull er í Alaska og hefur hopað gríðarlega frá árinu 1982. Vísindamenn áætla að jökullinn haf hopað um allt að 16 kílómetra frá árinu 1982 og á næstu áratugum er áætlað að jökullinn hopi um aðra 15 kílómetra.Bear-jökull - AlaskaNASAFyrsta mynd tekin 5. júní 1980 - Önnur mynd tekin 16. maí 1989 - Þriðja mynd tekin 13. maí 2011 Hlýnun á þessu svæði hefur tekið sinn toll af Bjarnarjöklinum en minni snjór safnast saman á yfirborði jökulsins. Á myndunum má sjá hvernig jökullinn hefur þróast undanfarna áratugi. Á nýjustu myndinni má sjá hvernig brotnað hefur úr sporði jökulsins og ísjakar safnast saman í lóninu.Mýrdalsjökull - ÍslandNASAVinstri myndin tekin 16. september 1986 - Hægri myndin tekin 20. september 2014Þennan jökul þekkja flestir Íslendingar en Mýrdalsjökull er fjórði stærsti jökull landsins. Á síðari myndinni má greinilega sjá öskurendur eftir eldgosin á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli. Á myndinni sést einnig Sólheimajökull (tungan sem stendur úr Mýrdalsjökli neðarlega til vinstri) sem Ólafur Ragnar og Hollande heimsóttu en hann hopar um allt að 50 metra á ári.Peterman-jökull - GrænlandNASAVinstri mynd tekin 26.júní 2010 - Hægri mynd tekin 13. ágúst 2010Gríðarstór íshella, um fjórum sinni stærri en Manhattan, brotnaði frá Peterman-jöklinum í ágúst árið 2010. Líklegt þykir að hlýrra vatn undir jöklinum og á yfirborði sjávar hafi valdið því að íshellan hafi brotnað.
Tengdar fréttir COP21: Samningurinn lagalega bindandi og hækkun hitastigs „vel undir tveimur gráðum“ Laurent Fabius segir að samningstextinn sé vel samsettur , raunsær, lagalega bindandi og metnaðarfullur. 12. desember 2015 11:31 Loftslagssamningur samþykktur í París Samningurinn sem felur í sér að hitastig jarðarinnar hækki ekki um meira en tvær gráður fyrir árið 2050 var rétt í þessu samþykktur á Loftslagsráðstefnunni í París. 12. desember 2015 18:50 Hlýnun jarðar sést hvað best á Íslandi Breytingar á tiltölulega einföldu vistkerfi Íslands gera það að verkum að allar breytingar sjást greinilega. Nýjar lífverur verða áberandi í vötnum og í sjó. Vatn verður innan tíðar ein mesta auðlind mannkyns. 5. desember 2015 07:00 Aðeins fáeinir áratugir til stefnu Sameinuðu þjóðirnar nýttu sennilega sitt síðasta tækifæri til að ná samstöðu þjóða í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Loftslagssamningur var heimsbyggðinni lífsnauðsynlegur. Ef hann verður meira en orð á blaði þá boðar hann 16. desember 2015 07:00 Eitt af því sem hefur haft mest áhrif á Hollande síðustu ár Forseti Frakklands og íslenskur starfsbróðir hans heimsóttu Sólheimajökul í dag. 16. október 2015 22:03 Mest lesið Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Erlent Fleiri fréttir Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Sjá meira
COP21: Samningurinn lagalega bindandi og hækkun hitastigs „vel undir tveimur gráðum“ Laurent Fabius segir að samningstextinn sé vel samsettur , raunsær, lagalega bindandi og metnaðarfullur. 12. desember 2015 11:31
Loftslagssamningur samþykktur í París Samningurinn sem felur í sér að hitastig jarðarinnar hækki ekki um meira en tvær gráður fyrir árið 2050 var rétt í þessu samþykktur á Loftslagsráðstefnunni í París. 12. desember 2015 18:50
Hlýnun jarðar sést hvað best á Íslandi Breytingar á tiltölulega einföldu vistkerfi Íslands gera það að verkum að allar breytingar sjást greinilega. Nýjar lífverur verða áberandi í vötnum og í sjó. Vatn verður innan tíðar ein mesta auðlind mannkyns. 5. desember 2015 07:00
Aðeins fáeinir áratugir til stefnu Sameinuðu þjóðirnar nýttu sennilega sitt síðasta tækifæri til að ná samstöðu þjóða í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Loftslagssamningur var heimsbyggðinni lífsnauðsynlegur. Ef hann verður meira en orð á blaði þá boðar hann 16. desember 2015 07:00
Eitt af því sem hefur haft mest áhrif á Hollande síðustu ár Forseti Frakklands og íslenskur starfsbróðir hans heimsóttu Sólheimajökul í dag. 16. október 2015 22:03