Innlent

Gróðurofnæmi nær nú hámarki fyrr en áður

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Garðsláttur og gola er skelfileg blanda fyrir ofnæmissjúklinga.
Garðsláttur og gola er skelfileg blanda fyrir ofnæmissjúklinga. NordicPhotos/Getty
Yfirleitt er gróðurofnæmi verst á tímabilinu 10. júlí til 10. ágúst. Þá er grasfrjó svífandi um loftin en langflestir þeirra sem eru með gróðurofnæmi eru með ofnæmi fyrir grasfrjói.

Vegna góðra veðurskilyrða er ofnæmistímabilið þó fyrr á ferðinni þetta árið og Davíð Gíslason ofnæmislæknir segir það ná hámarki á næstu dögum.

„Verstu skilyrðin eru þegar öðrum finnst veðrið voða gott. Það kemur mest frjómagn í loftið þegar það hefur rignt og svo þornar upp með sól og smá golu. Sérstaklega ef það er norð-austan átt,“ útskýrir Davíð með nákvæmum hætti.



 

Margir velta fyrir sér af hverju ofnæmi hefur aukist svo mikið síðustu áratugi og Davíð staðfestir að það hafi greinilega orðið jöfn og stöðug aukning síðustu áratugi. Aftur á móti séu ekki til nýlega tölur um fjölda ofnæmissjúklinga og erfitt sé að staðhæfa um hvað valdi aukningunni. Það tengist þó nútímalífsháttum.

„Ofnæmi er almennt meira í smáum fjölskyldum en stórum. Það er meira ef fólk hefur rúmt um sig heldur en ef það býr þétt þar sem er lítið rými. Vafalaust hefur bílamengun sitt að segja, þá kannski frekar mengun frá díselbílum.“

Davíð segir einkenni ofnæmis vera auðþekkjanleg. Þau eru kláði í nefi og nefrennsli og það sem er mest einkennandi er kláði í augum. Ef fólk meðhöndlar ekki ofnæmið getur það fengið astmaeinkenni þegar líður á sumarið. Davíð segir nauðsynlegt að vera á lyfjum yfir allt sumarið og þannig ættu allir að geta notið þess að vera úti við.

„Best er að taka ofnæmislyf á hverjum degi allt sumarið og jafnvel bæta við sterapústi yfir versta tímann auk augndropa. Ef fólk fer í útilegur er best að tjalda þar sem búið er að slá grasið, og það helst fyrir nokkrum dögum. Eða við vatnsbakka.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×