Breskur maður ber kennsl á son sinn í aftökumyndbandi ISIS Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 28. ágúst 2016 21:35 Fangarnir sem myrtir eru í myndbandinu eru allir Kúrdar. Vísir/skjáskot
Hryðjuverkasamtökin ISIS hafa birt myndband þar sem fimm ungir drengir myrða fimm fanga. Einn drengjanna er breskur og hefur faðir hans stigið fram og sagt hann vera son sinn og eftirlýsta hryðjuverkakvendisins Sally Jones. Í myndbandinu kemur fram að drengirnir séu frá Bretlandi, Túnis, Egyptalandi, Úsbekistan og að einn sé Kúrdi. Á vef CNN kemur fram að mennirnir sem myrtir eru í myndbandinu séu allir Kúrdar. Breski drengurinn segir ekkert í myndbandinu, en eina barnið sem talar er sagt vera frá Túnis. Faðir breska drengsins hefur borið kennsl á hann sem son sinn Jojo, sem hann á með eftirlýstum hryðjuverkamanni að nafni Sally Jones. Hann segir þau hafa slitið sambandi sínu stuttu eftir að drengurinn fæddist og að Jones hafi tekið upp múslimatrú stuttu eftir það. Hún giftist stuðningsmanni ISIS stuttu seinna og parið flúði með Jojo til Sýrlands árið 2013 þegar drengurinn var 10 ára gamall. Talið er að eiginmaður hennar hafi látið lífið í dróna-árás á síðasta ári. ISIS hafa sífellt aukið notkun barna við hryðjuverk, notfært sér þau við gerð áróðursefnis og látið þau fremja ýmis ódæðisverk. Samtökin halda úti umfangsmiklum barnaher og eru börnin allt niður í sjö ára gömul. Notkun á börnum undir 15 ára aldri í hernaði er skilgreind sem stríðsglæpur af alþjóðlega glæpadómstólnum.
Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Sjá meira