450 tonna smjörfjall til í landinu og 650 tonn eru til af mjólkurdufti Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 12. mars 2016 20:18 Egill Sigurðsson, formaður stjórnar Mjólkursamsölunnar og Auðhumlu. Á deildarfundum Auðhumlu sem nú standa yfir eru ræddar mögulegar leiðir til að draga úr framleiðslu, en enginn ein leið hefur verið valin. Vísir. „
Smjörbrigðir í landinu nú er um 450 tonn og er það 150 til 200 tonnum umfram æskilegar brigðir á þessum árstíma, eða ígildi 4 til 5 gáma. Ekkert smjör var flutt út á síðasta ári eða það sem af er þessu ári. Unnið er að því komast aftur inná þá markaði er við seldum til áður en við urðum frá að hverfa vegna hráefnisskorts, en um annað var ekki að ræða á þeim tíma. Mjög mikilvægt er að náum að selja sem mest af smjöri í neytenda pakkningum , sem alla jafna gefur hærra verð,“ segir Egill Sigurðsson, formaður stjórnar Mjólkursamsölunnar og Auðhumlu, sem er fyrirtæki mjólkurframleiðanda, vegna umræðna um stöðuna í framleiðslu og sölu mjólkur og að upp séu að safnast fjöll í brigðum. Hann segir að um 650 tonn af mjólkurdufti séu nú til í landinu en æskileg brigðastaða á þessum árstíma er á bilinu 250 til 300 tonn, þannig að flytja þarf út 350 til 400 tonn og til viðbótar það sem kann að verða framleidd umfram markaðsþarfir hér innanlands næstu mánuði, sem áætlanir gera ráð fyrir að verði um 1800 tonn. „Þannig að það eru 9 til 10 gámar sem bíða útflutnings núna. Verð á undanrennudufti er í sögulegu lágmarki og hefur fallið mjög mikið á síðustu misserum og sjást verð allt niður fyrir 1500 dollara á tonnið, en það er verðfall um fast að 60 % frá því verði er var fyrir tveimur árum, þegar verðið var 3200 dollarar á hverju tonni. Það er mjög mikilvægt að framleiðsla mjólkur færist nær hagkvæmari markaðsþörf en nú er“, bætir Egill við.Eigið fé Auðhumlu er 7 milljarðar Á deildarfundum Auðhumlu sem nú standa yfir eru ræddar mögulegar leiðir til að draga úr framleiðslu, en enginn ein leið hefur verið valin. Það er bæði bændum sem og fyrirtækis þeirra Auðhumlu til hagsbóta að ná jafnvægi í mjólkurframleiðslu sem fyrst, það er nú rædd á fyrrnefndum fundum. „Afkoma Auðhumlu samstæðunnar á síðasta ári var neikvæð um um rúmar 100 milljónir eða sem svara 0.4 % af veltu ársins 2015, en inn í þeirri niðurstöðu er afkoma MS. Eigið fé Auðhumlu í lok síðasta árs er tæpir 7 milljarðar og því fjarri því að afkoma ársins sé að stefna fyrirtækinu í þrot. Vonast ég til að þessar upplýsingar komi að gagni þeim er vilja ræða um stöðu mjólkurframleiðslu og meinta brigðasöfnun nú um stundir“, segir Egill.
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira