Ölgerðin kærir tvo fyrir meint fjársvik: „Þetta eru töluverðar fjárhæðir“ Birgir Olgeirsson. skrifar 11. maí 2015 20:52 Starfsmaður Ölgerðarinnar sem hefur verið kærður starfaði sem vörumerkjastjóri innan fyrirtækisins.
Ölgerðin Egill Skallagrímsson hefur kært tvo einstaklinga til lögreglu fyrir meint fjársvik. Um er að ræða vörumerkjastjóra hjá Ölgerðinni og starfsmann hjá auglýsingastofu. DV greindi fyrst frá málinu í kvöld. „Þetta er í rannsókn en það er ljóst að þetta hefur staðið yfir í talsverðan tíma,“ segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, í samtali við Vísi um málið en hann vildi ekki gefa frekari upplýsingar um brotin. Málið snýst um það sem Ölgerðin vill meina að hafi verið tilhæfulausir reikningar. „Sem hafa flotið á milli og gefnir út á Ölgerðina,“ segir Andri Þór. Hann segir vörumerkjastjóra Ölgerðarinnar hafa verið sagt upp störfum í dag og var hann og starfsmaður auglýsingastofunnar teknir til yfirheyrslu hjá lögreglu. Spurður hvort um háar fjárhæðir sé að ræða segist hann ekki vilja nefna neina tölu. „En þetta eru umtalsverðar fjárhæðir. Það þarf ekki að fara nánar út í það en ég held að það sé augljóst að þetta eru ekki hundrað þúsund kallar,“ segir Andri Þór.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Sjá meira