Stefán og Gísli Freyr berjast um fyrsta sætið í QuizUp Birgir Olgeirsson. skrifar 6. febrúar 2015 14:48 Stefán og Gísli eru í sérflokki í söguspurningum í QuizUp. Vísir
Íslenska smáforritið QuizUp hefur notið mikilla vinsælda síðustu misseri og margir sem hafa sökkt sér í þennan skemmtilega spurningaleik frá Plain Vanilla. Á meðal þeirra eru Stefán Eiríksson, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, og Gísli Freyr Valdórsson, fyrrverandi aðstoðarmaður innanríkisráðherra. Stefán er sem stendur stigahæstur í söguflokki QuizUp í febrúarmánuði með 8692 stig en fast á hæla hans í öðru sæti er Gísli Freyr Valdórsson með 8496 stig. Það má segja að þeir Stefán og Gísli séu í sérflokki þegar kemur að söguspurningum í þessum spurningaleik því sá sem er í þriðja sæti er með 3650 stig. Stefán var áður lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu en hann fór fyrir rannsókn lögreglunnar vegna leka á upplýsingum um hælisleitandann Tony Omos úr innanríkisráðuneytinu. Gísli Freyr var aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra og hlaut dóm fyrir þennan leka.Stefán öflugur í Útsvari Stefán hefur greinilega mikinn áhuga á fróðleik en hann er í liði Seltjarnarness í spurningaþættinum Útsvari í Sjónvarpinu. Síðast þegar Stefán var í Útsvari var það daginn sem Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, kynnti niðurstöðu á frumkvæðisathugun sinni á samskiptum Hönnu Birnu og Stefáns. Var það mat umboðsmanns að samskipti Hönnu við Stefán, á meðan lögreglan rannsakaði ráðuneytið, hefðu verið ósamrýmanleg stöðu ráðherra sem yfirstjórnanda lögreglunnar. Þegar Stefán mætti í Útsvarið um kvöldið þurfti hann að þola nokkur skot frá þáttastjórnendum sem spurðu hann hvort hann ætlaði einhvern tímann að tjá sig um þessa lekamálsrannsókn en Stefán sagðist léttur í bragði gera það ef fimmtán stig fengust fyrir það í Útsvari.Þegar kom að flokkaspurningunum var tilkynnt að reglum þáttarins hefðu verið breytt á þann veg að nú væri það stigahæsta liðið sem ætti að velja fyrst og var það í þessu tilviki lið Stefáns. Á skjánum blöstu við fjórir valflokkar sem voru: Innanríkisráðuneytið, trúnaðargögn, leynifundir og umboðsmaður.„Hvenær á þessu einelti að ljúka,“ spurði Stefán léttur í bragði í kjölfarið. Stefán var spurður hvaða flokk hann vildi og svaraði hann: „Heyrðu, umboðsmaður er í miklu uppáhaldi hjá mér.“ Þáttastjórnendur tilkynntu í kjölfarið að verið væri að fíflast í Stefáni og komu í kjölfarið upp „hefðbundnir“ valflokkar.
Tengdar fréttir „Stefán, tjáir þú þig um eitthvað þessa dagana?“ „Hvenær ætlar þessu einelti að ljúka,“ spurði Stefán Eiríksson, fyrrverandi lögreglustjóri, í Útsvarinu í kvöld þar sem slegið var á létta strengi eftir atburði dagsins. 23. janúar 2015 21:45 Gísli Freyr greiðir íslenskri konu bætur Fyrrverandi aðstoðarmaður innanríkisráðherra og íslensk kona sem nafngreind var í minnisblaði í tengslum við Lekamálið svokallaða hafa náð sáttum um að Gísli Freyr greiði henni bætur. 5. febrúar 2015 13:15 Hanna Birna: „Mistök af minni hálfu að eiga samskipti við lögreglustjórann“ Fyrrverandi innanríkisráðherra bað Stefán Eiríksson afsökunar á fundi með umboðsmanni alþingis. 23. janúar 2015 10:08 Mest lesið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Menningarsprautur í hvísluleik Menning Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Kát á kynfræðslukarnivali Menning Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Fleiri fréttir „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Sjá meira
„Stefán, tjáir þú þig um eitthvað þessa dagana?“ „Hvenær ætlar þessu einelti að ljúka,“ spurði Stefán Eiríksson, fyrrverandi lögreglustjóri, í Útsvarinu í kvöld þar sem slegið var á létta strengi eftir atburði dagsins. 23. janúar 2015 21:45
Gísli Freyr greiðir íslenskri konu bætur Fyrrverandi aðstoðarmaður innanríkisráðherra og íslensk kona sem nafngreind var í minnisblaði í tengslum við Lekamálið svokallaða hafa náð sáttum um að Gísli Freyr greiði henni bætur. 5. febrúar 2015 13:15
Hanna Birna: „Mistök af minni hálfu að eiga samskipti við lögreglustjórann“ Fyrrverandi innanríkisráðherra bað Stefán Eiríksson afsökunar á fundi með umboðsmanni alþingis. 23. janúar 2015 10:08