Lífið

Leðurbaróninn blanda úr tveimur óperum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
 „Þarna koma fram margir efnilegir söngvarar sem eiga örugglega eftir að ná langt í framtíðinni,“ segir Hrönn Þráinsdóttir undirleikari.
„Þarna koma fram margir efnilegir söngvarar sem eiga örugglega eftir að ná langt í framtíðinni,“ segir Hrönn Þráinsdóttir undirleikari. Fréttablaðið/Pjetur
„Leðurbaróninn er blanda af tveimur óperettum eftir Jóhann Strauss, Leðurblökunni og Sígaunabaróninum,“ segir Hrönn Þráinsdóttir tónlistarstjóri og píanóleikari í sýningu Nemendaóperu Söngskólans í Reykjavík í Iðnó.

„Við ákváðum að taka eitthvað eftir Strauss því að það er afmælisár, 190 ár liðin frá fæðingu hans. Við fléttum þessum tveimur óperum saman og köllum sýninguna Leðurbaróninn. Það var annaðhvort að velja nafnið Sígaunablakan eða Leðurbaróninn og það síðarnefnda varð ofan á.“

Hrönn segir tónlistina í óperunni hljómfagra, fjöruga og heillandi.

„Það þekkja allir aríur úr þessum óperettum Strauss,“ segir hún og minnir á að Íslenska óperan opnaði óperuhúsið sitt með sýningum á Sígaunabaróninum 1982 og sýndi 50 sýningar fyrir fullu húsi.

Söngvararnir í Leðurbaróninum eru allir úr röðum nemenda í framhalds- eða háskólanámi við Söngskólann í Reykjavík.

„Þetta er mikið efni og ansi flókið fyrir unga fólkið en það stendur sig svakalega vel,“ segir Hrönn.

„Þó að músíkin sé létt og skemmtileg eftir valsakónginn þá er þetta mikið stykki að takast á við fyrir krakkana. En auðvitað er frábært fyrir þá að fá að standa að alvöru sýningu í alvöru leikhúsi.

Iðnó er dásamlegt hús að sýna í og við notum sviðið og salinn. Tökum þetta alla leið. Þarna koma fram margir efnilegir söngvarar sem eiga örugglega eftir að ná langt í framtíðinni.“

Leðurbaróninn er 40. uppfærsla Nemendaóperu Söngskólans á þeim 33 árum sem hún hefur verið starfrækt. Sibylle Köll er leikstjóri. Tvær sýningar verða á morgun, sunnudag, sú fyrri klukkan 16 og síðari klukkan 20.

Leðurbaróninn gerist í Vín og hittast allar persónur sögunnar á sama balli, margar í dulargervi og hefur hver sína ástæðu. Þegar líða fer á dansleikinn tilkynnir Leðurblakan, Falke, að nú hefjist hlutverkaleikur og þar með eru allir komnir með hlutverk í Sígaunabaróninum.

Þegar Falke finnst nóg komið, hverfa gestir aftur til raunveruleikans, veislusalarins í Vín. En þótt Sígaunabaróninn hafi aðeins verið hlutverkaleikur kann eitthvað að hafa breyst í samskiptum gestanna!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×