Guðmundur Hólmar á leið til Frakklands Henry Birgir Gunnarsson skrifar 11. júní 2015 14:00 Guðmundur Hólmar í leik gegn Fram. vísir/ernir
Það er svo gott sem frágengið að Guðmundur Hólmar Helgason yfirgefi herbúðir Valsara að ári liðnu. Þá mun hann væntanlega ganga í raðir franska úrvalsdeildarliðsins Cesson Rennes þar sem Ragnar Óskarsson, fyrrum aðstoðarþjálfari Vals, er aðstoðarþjálfari. „Öll formsatriði eru klár en ég á eftir að skrifa undir. Ég fer svo út í júlí og geng væntanlega frá þessu," segir Guðmundur Hólmar. „Það hefur verið stefnan í langan tíma að komast í atvinnumennsku þannig að þetta er mjög gaman. Ég mun að öllu óbreyttu skrifa undir tveggja ára samning." Cesson Rennes sigldi lygnan sjó í frönsku deildinni á nýliðinni leiktíð. Liðið varð í sjöunda sæti af fjórtán liðum. „Ég hef trú á því að þetta sé fínn staður til þess að hefja minn atvinnumannaferil. Ég þekki Ragga vel sem er toppmaður. Þetta á eftir að vera gaman. Þeir eru að hugsa um mig í svipuðu hlutverki hjá Val. Stórt hlutverk í vörn og sókn þar sem ég verð bæði miðjumaður og skytta. Ég er samt aðallega hugsaður sem miðjumaður." Guðmundur Hólmar mun því spila með Val næstu leiktíð en hvernig tilfinning er að vera kominn með samning en fara ekki fyrr en eftir ár? „Það eru blendnar tilfinningar. Það er ákveðið öryggi að vera kominn með samning en samt skrítið að spila eftir að hafa samið við annað lið. Ég held ég þurfi klárlega á því að halda að spila eitt ár í viðbót heima. Þroska minn leik og halda áfram að bæta mig. Svo erum við nýbúin að eignast okkar annað barn og fínt að ná einu ári hér heima með því áður en við förum út."
Handbolti Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Gat ekki munað nafnið eftir sextán hringi Sport Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti FH hélt Selfossi á botninum Handbolti Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Fótbolti Dagskráin í dag: Haaland í Portúgal, Formúla 1 og kapphlaup Blika og FH-inga Sport Fleiri fréttir FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Sjá meira