Landslið Katar fær þriggja mánaða undirbúning Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. apríl 2015 16:45 Vísir/Getty
Óhætt er að fullyrða að landslið Katar, undir stjórn Spánverjans Valero Rivera, fái að æfa meira en flest önnur landslið heimsins. Rivera hefur tilkynnt að landsliðið muni koma saman þann 10. ágúst til þess að undirbúa liðið fyrir undankeppni Ólympíuleikanna í Asíu sem fer einmitt fram í Katar dagana 9.-20. nóvember. Katar undirbjó sig svo mánuðum skipti fyrir HM í handbolta sem haldið var þar í landi í upphafi ársins og komst alla leið í úrslit þar sem liðið tapaði fyrir Frökkum. Önnur landslið fá leikmenn fáeinum vikum fyrir stórmót og í nokkra daga fyrir stök landsliðsverkefni nokkrum sinnum á ári. „Við munum hefja stífar æfingar þann 10. ágúst og vinna til loka október. Það gefur okkur nægan tíma til að undirbúa okkur fyrir undankeppnina,“ sagði Rivera. „Ég er þó ekki viss að við verðum með sama lið og varð í öðru sæti á HM. Það er erfitt að ná árangri með sömu leikmenn,“ sagði þjálfarinn enn fremur en lið Katar er nánast eingöngu skipað aðkomumönnum. „Eftir sigurinn á Asíumeistaramótinu skipti ég út fimm leikmönnum og svo þremur eftir Asíuleikana. Það getur verið að ég sæki aftur nokkra leikmenn sem duttu út eftir Asíuleikana en þar með gæti ég breytt um leikskipulag fyrir undankeppni Ólympíuleikana.“ „En eitt er víst. Allir þeir leikmenn sem hafa ekki áhuga á að leggja mikið á sig komast ekki í liðið.“ Sigurvegari undankeppninnar í Asíu kemst til Ríó, sem og Suður-Ameríkumeistararnir árið 2015, Evrópumeistararnir 2016, Afríkumeistararnir 2016 ásamt heimsmeisturum Frakklands og gestgjöfum Brasilíu. Keppt verður um hin sex sætin í undankeppni sem fer fram í apríl 2016.
Handbolti Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Sýður á Svisslendingum Fótbolti Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Fleiri fréttir Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Sjá meira