Evrópusambandið fagnar sigri Tsipras Guðsteinn Bjarnason skrifar 22. september 2015 07:00 Alexis Tsipras gekk í gær á fund Prokopis Pavlopúlos forseta, eftir að hafa unnið nokkuð óvæntan kosningasigur um helgina. NordicPhotos/AFP „
Framkvæmdastjórnin óskar Alexis Tsipras til hamingju með sigurinn,” sagði Margaritis Schinas, talsmaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, við fréttamenn í gær. Tsipras vann ótvíræðan sigur í þingkosningum á sunnudaginn, litlu minni sigur en þann sem hann vann í byrjun ársins þegar vinstriflokkur hans, SYRIZA, komst til valda út á harða gagnrýni sína á samstarf fyrri stjórnar við Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Schinas minnti á að í sumar hefði Tsipras samið við Evrópusambandið um erfiðar aðhaldsaðgerðir í ríkisfjármálum. Með sigri sínum hefði Tsipras og flokkur hans tryggt sér umboð þjóðarinnar til að framkvæma þessar aðgerðir eins og um var samið. „Mikið verk er óunnið og engan tíma má missa,“ sagði Schinas. SYRIZA hlaut 35 prósent atkvæða og getur myndað nauman meirihluta með samstarfsflokki sínum, Óháðum Grikkjum, sem fékk þó innan við fjögur prósent atkvæða. Saman eru flokkarnir með 155 þingsæti af 300. Sigurinn er nokkuð óvæntur, ekki síst vegna þess að margir þingmenn og flokksfélagar höfðu yfirgefið SYRIZA vegna óánægju með samninginn við Evrópusambandið. Hægri flokkurinn Nýtt lýðræði hlaut næstflest atkvæði í kosningunum, og má búast við að sá flokkur muni styðja að miklu leyti aðhaldsaðgerðir stjórnarinnar, enda studdi flokkurinn samninginn við ESB í sumar.
Tengdar fréttir Syriza fær tæpan meirihluta á gríska þinginu Fá fjórum mönnum minna en þegar flokkurinn vann stórsigur í síðustu kosningum. 21. september 2015 07:05 Tsipras: „Grikkland og gríska þjóðin eru samheiti yfir mótspyrnu og virðuleik“ Syriza flokkurinn stóð uppi sem sigurvegari í grísku þingkosningunum. 21. september 2015 14:23 Mest lesið Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Trump sagður hlynntur afsali lands Erlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Innlent Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Erlent Hitamet aldarinnar slegið Veður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Rjómablíða hætt að teljast til tíðinda fyrir austan Veður Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Innlent Fleiri fréttir Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Sjá meira
Syriza fær tæpan meirihluta á gríska þinginu Fá fjórum mönnum minna en þegar flokkurinn vann stórsigur í síðustu kosningum. 21. september 2015 07:05
Tsipras: „Grikkland og gríska þjóðin eru samheiti yfir mótspyrnu og virðuleik“ Syriza flokkurinn stóð uppi sem sigurvegari í grísku þingkosningunum. 21. september 2015 14:23