Dagur: Engin pressa á mér Tómas Þór Þórðarson skrifar 13. maí 2015 15:30 Dagur Sigurðsson getur kvatt Refina með Evróputitli. vísir/getty
Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í Füchse Berlín standa í ströngu þessa dagana, en þeir spiluðu um síðustu helgi til undanúrslita í þýska bikarnum. Berlínarrefirnir eiga fyrir höndum aðra úrslitahelgina í röð, núna í EHF-bikarnum, en hún fer fram á heimavelli þeirra í Max Schmeling-höllinni í Berlín. Füchse mætir slóvenska liðinu RK Velenje í undanúrslitum á laugardaginn, en í hinum undanúrslitaleiknum mætast danska liðið Skjern og þýska liðið Hamburg. „Ef ég á að vera heiðarlegur var mér alveg sama hverjum við myndum mæta þegar dregið var. Þetta eru fjögur jöfn lið sem eiga öll skilið að vera komin svona langt. Við erum búnir að mæta Hamburg tvisvar í deildinni og Skjern tvisvar í EHF-bikarnum þannig að mæta Velenje er kannski einhver fyrirboði,“ segir Dagur í viðtali á vef evrópska handknattleikssambandsins. Úrslitahelgin fór einnig fram í Berlín í fyrra en þá misstu refirnir af tækifærinu að spila fyrir framan sitt fólk þar sem þeir komust ekki í undanúrslit. „Við erum í annarri stöðu í ár. Við erum reyndari eftir að spila í þessari keppni í fyrsta skipti í fyrra. Nú höfum við vonandi lært okkar lexíu. Öll fjögur liðin sem taka þátt um helgina gætu verið að spila í Meistaradeildinni þannig hlutirnir verða ekki auðveldir fyrir okkur,“ segir Dagur. Úrslitahelgi EHF-bikarsins er síðasti möguleiki Dags á stórum titli með Füchse Berlín þar sem hann lætur af störfum hjá liðinu í sumar og einbeitir sér að þýska landsliðinu. Þrátt fyrir það finnur hann ekki til meiri pressu að skila titli í hús, en þetta verður einnig í síðasta skiptið sem tveir af bestu leikmönnum liðsins reyna að vinna bikar fyrir Refina. „Það er engin pressa á mér. Það eru líka fleiri að kveðja eins og Iker Romero og Konstantin Igroupoulo. Við róum allir í sömu átt og viljum ná takmarki okkar saman. Allir - ekki bara þeir sem eru að fara - eru ólmir í að vinna þennan titil,“ segir Dagur Sigurðsson.
Handbolti Mest lesið HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Afturelding - Stjarnan | Topplið Lengjudeildar með brothætta gesti Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira