Kerfið mikilvægara en bændur? Finnur Árnason skrifar 4. ágúst 2015 07:00 Nýlega skoraði ég á stjórnvöld að endurskoða hækkun á mjólkurvörum. Ástæðan, að opinber verðlagsnefnd ákvað að hækka verð á mjólkurvörum, m.a. á smjöri um 11,6%. Þrefalda hækkun vísitölu neysluverðs. Ég taldi rétt að stjórnvöld sýndu gott fordæmi og gættu aðhalds í verðlagsmálum. Vanhugsað væri að hækka verð svo mikið í kjölfar árangursríkra kjarasamninga. Tímasetningin er röng og sendir röng skilaboð frá stjórnvöldum. Hún hefur víðtækari áhrif, m.a. á verðtryggð húsnæðislán heimilanna. Athygli vakti að hækkunin rann að mjög litlu leyti til bænda. Neytendur greiða hærra verð, sem fer ekki til bænda. Ætla mætti að ég og formaður bænda ættum samleið í þessu máli. Svo var ekki. Ég kom við viðkvæman blett. Svo viðkvæman að formaður bændasamtakanna hætti að vera talsmaður bænda. Bændur voru skildir eftir útundan og kerfið varið á kostnað bænda og heimila. Ráðherra svaraði ekki áskorun minni. Forystumenn bænda veittust hins vegar að mér og Högum. Formaðurinn fremstur í flokki og gerir álagningu verslunarinnar að umtalsefni. Hann gefur í skyn að verslanir hafi hækkað álagningu. Hagar eru skráðir í Kauphöllina og er skylt að birta álagningu sína opinberlega. Álagning félagsins hefur lækkað. Nýjustu tölur staðfesta að félagið hefur skilað öllum skattabreytingum og styrkingu krónunnar að fullu til sinna viðskiptavina. Formaðurinn vitnar í skýrslur sem hann segir m.a. „staðfesta að þegar kemur að álagningu og hækkunum til neytenda er verslunin mjög gróf“. Þessi svívirðilega aðdróttun á sér hvergi samastað og er ósönn. Engin skýrsla staðfestir að þetta eigi við um Haga. Formaðurinn nefndi ekki að til ársins 2013 bauð MS árlega 75 tonn af smjöri á 20% afslætti til neytenda, 8% af heildarsölu smjörs. Í stað þess að segja ósatt og ásaka verslunina væri rétt að skoða heimahagana. Með því að hætta tilboðum hækkaði heildsöluálagning á smjöri á umræddu tímabili umtalsvert. Landbúnaðarkerfið kostar neytendur 16-18 milljarða á ári. Bændur bera lítið úr býtum, neytendur greiða hátt verð og kostnaður ríkissjóðs er umtalsverður. Breytingar munu bæta hag bænda og hag neytenda. Sérhagsmunasamtök formannsins fá 500 milljónir á ári af fjárlögum í hagsmunabaráttu. Hærri upphæð en samanlagðir árlegir ríkisstyrkir til allra stjórnmálaflokka. Sindri vill ekki að ég tali fyrir neytendur. Ég mun tala máli viðskiptavina okkar. Ríkisstyrktur rógburður mun ekki breyta því og áskorun mín til stjórnvalda stendur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Afþökkum barnaskatt Samfylkingarinnar í Kópavogi Andri Steinn Hilmarsson Skoðun Atkvæði er rödd Joanna Marcinkowska Skoðun Útborgun í íbúð eða leikskólapláss í Kópavogi? Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Hundalífið í Kópavogi Sólveig Skaftadóttir Skoðun Hver ber ábyrgð á stöðu Hafnarfjarðar? Karólína Helga Símonardóttir Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Bílar eru frábærir, nema ef við þurfum öll að nota þá Birkir Ingibjartsson Skoðun Styrkjum íslenskukennslu fyrir börn og ungmenni Eva Rún Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Afþökkum barnaskatt Samfylkingarinnar í Kópavogi Andri Steinn Hilmarsson skrifar Skoðun Leikskóladvöl í Fjarðabyggð er lúxus Ásdís Helga Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Týndi hópurinn á húsnæðismarkaði – gullnu árin Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Fólkið fyrst í Hafnarfirði Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason skrifar Skoðun Þessi fortíð lofar ekki góðu Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Menning er undirstaða öflugs samfélags á Seltjarnarnesi Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Atkvæði er rödd Joanna Marcinkowska skrifar Skoðun Sterkt samfélag byggir á fjölbreyttu atvinnulífi Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Samúel Karl Ólason skrifar Skoðun Af hverju ég býð mig fram fyrir Kópavog Svava Halldóra Friðgeirsdóttir skrifar Skoðun Græni tefillinn Sigrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern er byggt? Trausti Örn Þórðarson skrifar Skoðun Ýtum undir sterkari tengsl í Hafnarfirði Svenný Kristins skrifar Skoðun Gott að eldast á Akureyri Hanna Dóra Markúsdóttir skrifar Skoðun Biðlisti eftir lífinu Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Hleypum þeim værukæru í kærkomið frí Bjarni Thor Kristinsson skrifar Skoðun Deilur magnast í Borgarbyggð um vindorkuver Júlíus Valsson skrifar Skoðun Börn úr símum – inn í samfélagið Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir skrifar Skoðun Menning er skattstofn, ekki skraut Jón Bjarni Steinsson skrifar Skoðun Framsókn vill meiri virkni og vellíðan - Leikum okkur alla ævi Halldór Bachmann skrifar Skoðun Hundalífið í Kópavogi Sólveig Skaftadóttir skrifar Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Everything you need to know before Saturday Charlotte Ólöf Jónsdóttir Biering skrifar Skoðun Styrkjum íslenskukennslu fyrir börn og ungmenni Eva Rún Helgadóttir skrifar Skoðun Hestar í höfuðborginni Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Okkar sameiginlegu verk Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hvernig er að eldast í Reykjavík? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ríða, drepa, giftast Arna Sif Ásgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Nýlega skoraði ég á stjórnvöld að endurskoða hækkun á mjólkurvörum. Ástæðan, að opinber verðlagsnefnd ákvað að hækka verð á mjólkurvörum, m.a. á smjöri um 11,6%. Þrefalda hækkun vísitölu neysluverðs. Ég taldi rétt að stjórnvöld sýndu gott fordæmi og gættu aðhalds í verðlagsmálum. Vanhugsað væri að hækka verð svo mikið í kjölfar árangursríkra kjarasamninga. Tímasetningin er röng og sendir röng skilaboð frá stjórnvöldum. Hún hefur víðtækari áhrif, m.a. á verðtryggð húsnæðislán heimilanna. Athygli vakti að hækkunin rann að mjög litlu leyti til bænda. Neytendur greiða hærra verð, sem fer ekki til bænda. Ætla mætti að ég og formaður bænda ættum samleið í þessu máli. Svo var ekki. Ég kom við viðkvæman blett. Svo viðkvæman að formaður bændasamtakanna hætti að vera talsmaður bænda. Bændur voru skildir eftir útundan og kerfið varið á kostnað bænda og heimila. Ráðherra svaraði ekki áskorun minni. Forystumenn bænda veittust hins vegar að mér og Högum. Formaðurinn fremstur í flokki og gerir álagningu verslunarinnar að umtalsefni. Hann gefur í skyn að verslanir hafi hækkað álagningu. Hagar eru skráðir í Kauphöllina og er skylt að birta álagningu sína opinberlega. Álagning félagsins hefur lækkað. Nýjustu tölur staðfesta að félagið hefur skilað öllum skattabreytingum og styrkingu krónunnar að fullu til sinna viðskiptavina. Formaðurinn vitnar í skýrslur sem hann segir m.a. „staðfesta að þegar kemur að álagningu og hækkunum til neytenda er verslunin mjög gróf“. Þessi svívirðilega aðdróttun á sér hvergi samastað og er ósönn. Engin skýrsla staðfestir að þetta eigi við um Haga. Formaðurinn nefndi ekki að til ársins 2013 bauð MS árlega 75 tonn af smjöri á 20% afslætti til neytenda, 8% af heildarsölu smjörs. Í stað þess að segja ósatt og ásaka verslunina væri rétt að skoða heimahagana. Með því að hætta tilboðum hækkaði heildsöluálagning á smjöri á umræddu tímabili umtalsvert. Landbúnaðarkerfið kostar neytendur 16-18 milljarða á ári. Bændur bera lítið úr býtum, neytendur greiða hátt verð og kostnaður ríkissjóðs er umtalsverður. Breytingar munu bæta hag bænda og hag neytenda. Sérhagsmunasamtök formannsins fá 500 milljónir á ári af fjárlögum í hagsmunabaráttu. Hærri upphæð en samanlagðir árlegir ríkisstyrkir til allra stjórnmálaflokka. Sindri vill ekki að ég tali fyrir neytendur. Ég mun tala máli viðskiptavina okkar. Ríkisstyrktur rógburður mun ekki breyta því og áskorun mín til stjórnvalda stendur.
Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar
Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun