Lífið

Frá fegurðardrottningu í danskt dómarasæti

Guðrún Ansnes skrifar
Ingibjörg er mikill ferðalangur og munar ekki um að bregða sér til baunalandsins síðar í sumar.
Ingibjörg er mikill ferðalangur og munar ekki um að bregða sér til baunalandsins síðar í sumar. Vísir/Anton Brink
Ingibjörg Egilsdóttir, sem keppti fyrir Íslands hönd í Miss World árið 2009, mun nú snúa aftur eftir nokkurra ára fjarveru. Mun hún tylla sér hinumegin við borðið og dæma í Miss Denmark Universe 2015 í lok sumars.

„Ég var beðin að vera sérstakur dómari í keppninni í ár en hún verður afar vegleg, en mikið verður í hana lagt og henni til dæmis sjónvarpað,“ segir Ingibjörg og spennan leynir sér ekki.

„Ég hef tekið að mér hlutverk dómara í svona keppnum nokkrum sinnum áður, og ég leita ekki að ákveðinni staðalímynd eða ákveðnu útliti,“ útskýrir Ingibjörg þegar hún er spurð um hvort hún hafi uppskrift að fegurðardrottningu í handraðanum.„Fegurð í manneskju kemur að innan, fegurð er orka og óháð öðru að mínu mati.“



Ingibjörg er spennt fyrir verkefninu en sigurvegarinn mun keppa í Miss World, líkt og hún sjálf. „Eftir þátttökuna fóru hjólin að snúast hjá mér og ég fékk ýmis verkefni um allan heim,“ segir Ingibjörg en segist hafa lagt fyrirsætuferilinn á hilluna eftir að hún varð ófrísk. „Móðurhlutverkið er dásamlegasta hlutskipti sem ég hef fengið.“

Ingibjörg er sífellt með vegabréfið á lofti og flakkar heimshornanna á milli. Hún er nýlega komin aftur á klakann eftir að hafa fylgt kærastanum, Fjallinu sjálfu, Hafþóri Júlíusi Björnssyni, yfir hnöttinn til þátttöku í sterkasta manni heims.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×