Frá fegurðardrottningu í danskt dómarasæti Guðrún Ansnes skrifar 11. maí 2015 09:00 Ingibjörg er mikill ferðalangur og munar ekki um að bregða sér til baunalandsins síðar í sumar. Vísir/Anton Brink
Ingibjörg Egilsdóttir, sem keppti fyrir Íslands hönd í Miss World árið 2009, mun nú snúa aftur eftir nokkurra ára fjarveru. Mun hún tylla sér hinumegin við borðið og dæma í Miss Denmark Universe 2015 í lok sumars. „Ég var beðin að vera sérstakur dómari í keppninni í ár en hún verður afar vegleg, en mikið verður í hana lagt og henni til dæmis sjónvarpað,“ segir Ingibjörg og spennan leynir sér ekki. „Ég hef tekið að mér hlutverk dómara í svona keppnum nokkrum sinnum áður, og ég leita ekki að ákveðinni staðalímynd eða ákveðnu útliti,“ útskýrir Ingibjörg þegar hún er spurð um hvort hún hafi uppskrift að fegurðardrottningu í handraðanum.„Fegurð í manneskju kemur að innan, fegurð er orka og óháð öðru að mínu mati.“ Ingibjörg er spennt fyrir verkefninu en sigurvegarinn mun keppa í Miss World, líkt og hún sjálf. „Eftir þátttökuna fóru hjólin að snúast hjá mér og ég fékk ýmis verkefni um allan heim,“ segir Ingibjörg en segist hafa lagt fyrirsætuferilinn á hilluna eftir að hún varð ófrísk. „Móðurhlutverkið er dásamlegasta hlutskipti sem ég hef fengið.“ Ingibjörg er sífellt með vegabréfið á lofti og flakkar heimshornanna á milli. Hún er nýlega komin aftur á klakann eftir að hafa fylgt kærastanum, Fjallinu sjálfu, Hafþóri Júlíusi Björnssyni, yfir hnöttinn til þátttöku í sterkasta manni heims.
Mest lesið Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Ástfangin pör á Djöflum Menning „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Össur stendur með sundmönnunum Lífið Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Lífið Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Lífið Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Lífið Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Sjá meira