Ánægðastur með handboltann sem við erum að spila Henry Birgir Gunnarsson skrifar 11. maí 2015 06:00 Geir súr eftir leik í gær. vísir/getty „
Nú er maður bara á leiðinni heim að sleikja sárin,“ segir Geir Sveinsson, þjálfari þýska félagsins Magdeburg, en hans lið var grátlega nálægt því að vinna þýsku bikarkeppnina í gær er það mætti Evrópumeisturum Flensburg í úrslitaleik. Það var jafnt, 24-24, eftir venjulegan leiktíma og því varð að framlengja. Eftir framlenginguna var enn jafnt, 27-27, og því varð að grípa til vítakastkeppni. Hana vann Flensburg 5-4 en eini maðurinn sem klikkaði var Robert Weber sem er vítaskytta Magdeburg. „Fyrir vítakeppnina þökkuðum við Ljubomir Vranjes (þjálfari Flensburg) hvor öðrum fyrir leikinn enda ekkert annað sem við gátum gert þegar út í vítakeppnina var komið,“ segir Geir en hann var búinn að undirbúa sitt lið fyrir vítakastkeppni. Var samt ekki erfitt að standa hjá og horfa á vítakastkeppnina? „Nei, mér fannst það í sjálfu sér ekki svo erfitt enda var ég búinn að undirbúa liðið fyrir það og æfa þetta. Meira get ég ekki gert. Það er fáránlegt að níu víti af tíu skuli hafa endað inni. Það sem er kannski enn ótrúlegra er að okkar besta vítaskytta hafi verið sá eini sem klikkaði. Kannski pínu skrifað í skýin.“ Þetta var fimmta árið í röð sem Flensburg kemst í úrslit en liðið var búið að tapa úrslitaleiknum fjögur ár í röð. Liðið var ansi nærri því að tapa þeim fimmta. Stórkostlegt stemning var í hinni glæsilegu O2-höll í Hamborg. „Það er mikil ánægja með alla helgina. Leikirnir vinnast allir með einu marki og stemningin frábær. Ég hef aldrei verið þarna áður og þetta er í sjálfu sér alveg einstakt. Ótrúlegt.“Innistæða fyrir þessu hjá okkur Geir hefur verið að gera frábæra hluti með lið Magdeburg í vetur. Var næstum búinn að vinna bikarinn og er svo með liðið í fjórða sæti í deildinni sem gefur Evrópusæti. „Ég er einstaklega ánægður með þann handbolta sem við erum að spila. Það skiptir þjálfarann mestu máli. Við vorum mættir þarna til þess að vinna og menn sýndu að það var innistæða fyrir því. Ég er mjög stoltur af liðinu mínu. Við unnum liðið sem vann keppnina í fyrra og erum svo einu vítakasti frá því að vinna Evrópumeistarana.“
Handbolti Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Hissa á útspili Haalands Fótbolti Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Ken Bates látinn Enski boltinn „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Sjá meira