Nýjasta æðið að hreinsa hárið með c-vítamíni 9. maí 2015 08:00 Aníta Magnúsdóttir var ein þeirra sem prófuðu og var hæst ánægð með árangurinn. Vísir/Björn Árnason
Á síðunni Beauty tips hafa stelpur á öllum aldrei deilt reynslusögum af því hvernig þær hafa hreinsað lit úr hárinu með því að blanda C-vítamíni út í sjampóið sitt. C-vítamín er þekkt fyrir að hafa lýsandi áhrif bæði á húð og hár. Töflurnar eru muldar niður, til dæmis í blandara og þeim blandað við sjampóið. Blandan, sem verður mjög þykk, er borin í hárið og látin bíða í um klukkustund áður en skolað er úr. Þær þrjár stúlkur sem Fréttablaðið náði tali af voru sammála um að þetta hefði áhrif, en þau voru mismikil. Það kom þeim öllum á óvart að munurinn sást ekki fyrr en sjampóið var skolað úr og hversu mjúkt hárið var á eftir.Hárið á Anítu fyrir og svo eftir hreinsunina.VísirSátt við útkomuna „Ég er ljóshærð í alvörunni, en hef litað mig margoft, bæði á stofu og heima. Það hefur verið bæði fjólublátt og rauðbrúnt. Ég setti blönduna í þurrt hárið, og lét bíða í rúma klukkustund og þetta virkaði,“ segir Aníta Magnúsdóttir, ein þeirra sem prófuðu. „Það varð smá appelsínugult fyrst, en nú er appelsínuguli tónninn að fara og ég er komin með náttúrulega litinn minna aftur.“ Hún segir hárið ekki hafa þornað við hreinsunina, en það hafi verið þurrt fyrir eftir alla litunina áður. „Persónulega finnst mér það bara mýkra núna,“ segir hún.Aníta er mjög sátt með að vera komin með sinn lit aftur.VísirÚr svörtu í rautt Guðbjörg Ólafsdóttir hefur svipaða sögu að segja. „Ég var alveg svarthærð og núna er hárið á mér eiginlega rautt, sem ég er mjög sátt með. En ég hafði litað það rautt áður en ég litaði það svart,“ segir hún. „Ég notaði 60 töflur og heilan brúsa af sjampói, nuddaði mjög vel inn og setti svo poka yfir og lét bíða í 45 mínútur.“ Hún segir hárið vera mjög mjúkt og miklu mýkra en það var áður. „Það var rosalega þurrt, enda hafði ég litað það bæði á stofu og heima. Ég aflitaði mig einu sinni og þá missti ég mikið hár, þannig að ég var smá stressuð að það myndi gerast núna, en það gerðist ekki núna.“Hárið á Esther Maríu eftir tvær hreinsanir með C-vítamíni, en hún var alveg svarthærð áður.VísirGekk og gekk ekki „Ég hef litað á mér hárið svart síðan ég var tólf ára, þannig að ég veit eiginlega ekki hvernig það er á litinn í raun og veru. Þetta gekk og gekk ekki, en það eina sem gerðist hjá mér var að rótin lýstist talsvert upp,“ segir Esther María Ragnarsdóttir, en hún var alveg svarthærð þegar hún prófaði. „Ég gerði þetta aftur og þá komu eins og strípur í svarta litinn,“ segir hún. Eftir þetta litaði hún hárið þó aftur. „Það er greinilegt samt að þetta hreinsaði rótina, því hún er enn ljósari eftir að ég litað það.“ Fréttablaðið hafði samband við fjórar hárgreiðslustofur, en þar höfðu hárgreiðslumeistarar ekki heyrt um þessa aðferð. Allir voru þó sammála um að þetta væri eitthvað sem þeir yrðu að prófa, þótt þau hefðu ekki mikla trú á að þetta myndi virka.
Mest lesið Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Lífið Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Lífið Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Fleiri fréttir Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Sjá meira