Mið-Ísland á Akureyri og Dóri fer á bílnum Kjartan Atli Kjartansson skrifar 8. maí 2015 10:15 Hér sést grínhópurinn Mið-Ísland með bandaríska grínistanum Fred Armisen sem kom hingað til lands í síðasta mánuði. „
Já, Dóri ætlar að leggja af stað fyrstur og keyra með Magneu eiginkonu sinni,“ segir Björn Bragi Arnarson grínisti. Grínhópurinn Mið-Ísland kemur fram í Hofi á Akureyri í kvöld og sýnir Áfram Mið-Ísland! Hópurinn hefur ferðast nokkuð um landið en slíkt getur verið erfitt, sökum flughræðslu Dóra. „Í síðasta skiptið sem við fórum út á land skemmtum við í Neskaupstað. Það var útlit fyrir að Dóri færi hreinlega ekki með,“ útskýrir Björn Bragi og rifjar upp hreint lygilega atburðarás. „Dóri sendi okkur tölvupóst morguninn sem við áttum að fljúga og sagðist vera með hita. Okkur þótti líklegt að hann væri ekki að segja satt.“ Félagarnir í hópnum mættu fyrir utan íbúð Dóra og komust að því að hann var þá á fundi úti í bæ. „Við Jóhann Alfreð keyrðum um bæinn í leit að Dóra,“ segir Björn Bragi. En að lokum fannst hann og þeir drógu hann upp í vél. „Þetta er svo fyndið með Dóra. Hann kvíðir því auðvitað að fljúga en svo hellist þetta bara einhvern veginn yfir hann.“ Annars segist Björn Bragi hlakka til kvöldsins, en hópurinn þurfti að bæta við aukasýningu í Hofi í kvöld, sökum ásóknar í miða á fyrri sýninguna sem hefst klukkan 20. Sú síðari hefst klukkan 23. „Við elskum Akureyri. Þetta er þriðja árið sem við komum fram í Hofi og við kunnum mjög vel við okkur. Þorsteinn Guðmundsson kemur með, en hann kom líka með okkur í fyrra.“ Segja má að Þjóðleikhúskjallarinn sé heimavöllur Mið-Íslands, en hópurinn hélt síðustu sýninguna af Áfram Mið-Ísland! á dögunum. „Þetta gekk rosalega vel. Við héldum 60 sýningar og gestafjöldinn fór yfir tíu þúsund. Að sjálfsögðu er hópurinn glaður og þakklátur fyrir það. Sýningar Mið-Íslands eru að verða að föstum lið í leikhúsárinu.“Sýningarnar í Hofi í kvöld eru tvær. Sú fyrri hefst klukkan 20 og sú síðari klukkan 23. Hægt er að nálgast miða á midi.is.
Mest lesið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Lífið Fleiri fréttir Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Sjá meira