Hrædd um að ég verði búin að teikna allt um áramótin adda soffia ingvarsdóttir skrifar 7. maí 2015 12:00 Elsa Nilsen ásamt myndunum sínum, sem fjölgar með degi hverjum. Fréttablaðið/Vilhelm „
Ég er eiginlega búin að teikna allt sem er í kringum mig og flest allt sem ég hef verið að borða,“ segir Elsa Nilsen, grafískur hönnuður. Hún byrjaði að teikna litlar myndir um áramót, eina á dag líkt og dagbók, af hlutum sem eru í kringum hana.Myndirnar eru mjög nákvæmar.„Ég hugsaði að ég þyrfti að geta teiknað myndina á sem stystum tíma. Þannig eiginlega kviknaði hugmyndin að því að hafa þær svona litlar,“ segir hún, en myndirnar eru teiknaðar á blöð sem eru 7x7 sentimetrar að stærð. Hún reynir að tengja myndirnar við atburði dagsins, ef hún mögulega getur það. „Eins og með myndina af tannstönglinum. Klukkan var orðin margt svo ég gat ekki teiknað eitthvað flókið. Ég þurfti að nota tannstöngul til að losa um óreganó í tönninni og þar með var hugmyndin komin,“ segir hún og hlær.Þessi var gerð í tilefni Star Wars dagsins.Elsa segir verkefnið vera farið að vinda upp á sig, og fólk sé farið að senda henni hugmyndir að teikningum. „Það má eiginlega segja að fólk sé orðið hluti af dagbókinni minni. Ég fæ sendar hugmyndir og svo eru margir búnir að panta hjá mér myndirnar.“ Stefnan er að teikna myndirnar að minnsta kosti út árið og halda sýningu í byrjun næsta árs. „Mig langar að setja þær allar saman á sýningu og jafnvel selja þær þar. Það er búið að panta nokkrar myndir sem ég er búin að taka frá, en það fær þær enginn fyrr en eftir sýninguna,“ segir hún og hlær. Aðspurð hvort hún haldi að hún muni teikna allt næsta ár, segist hún ekki vera viss. „Mögulega verð ég búin að teikna allt þá. Þetta nefnilega má bara vera einn hlutur og ekki mjög flókinn.“
Mest lesið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Lífið Fleiri fréttir Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Sjá meira