Ákært fyrir manndráp viktoría hermannsdóttir skrifar 2. maí 2015 17:45 Marilyn Mosby sagði á fundinum í gær að um manndráp hefði verið að ræða. NORDICPHOTOS/GETTY
Sex lögregluþjónar í Baltimore verða ákærðir fyrir að hafa komið að dauða hins 25 ára Freddie Gray. Gray lést af áverkum meðan hann var í umsjá lögreglu og brutust út miklar óeirðir í borginni í kjölfar þess. Því hafði meðal annars verið haldið fram að Gray hefði reynt að veita sér áverkana sjálfur. Ákærurnar eru í nokkrum liðum en að minnsta kosti einn mannanna hefur verið ákærður fyrir manndráp.fÖGNUÐU ÁKAFT Mótmælendur í Baltimore fögnuðu ákaft eftir yfirlýsingu saksóknarans. NORDICPHOTOS/GETTYMarilyn Mosby ríkissaksóknari sagði á blaðamannafundi í gær að um manndráp hefði verið að ræða og að handataka Grays hefði verið ólögleg. Hún sagði að áverkar sem Gray hlaut á mænu eftir handtökuna hefðu dregið hann til dauða. Fyrir liggur að Gray var handtekinn og hafður í lögreglubíl í um fjörutíu mínútur áður en hann var færður á lögreglustöð. „Til fólksins í Baltimore og mótmælenda víða um Bandaríkin. Ég heyrði kall ykkar „ekkert réttlæti, enginn friður“. Það er þörf á friði meðan ég vinn að því að ná fram réttlæti fyrir hönd þessa unga manns,“ sagði Moby á fundinum í gær og vísaði þar til Grays. Mótmælendur í Baltimore fögnuðu mjög yfirlýsingu Mosby. Neyðarástandi var lýst yfir í borginni þegar óeirðirnar stóðu sem hæst og þjóðvarðliðar kallaðir til. Gray var dökkur á hörund og sá síðasti meðal margra ungra svartra manna sem látið hafa lífið í átökum við lögreglu í Bandaríkjunum undanfarin misseri. Lögregluþjónarnir sex voru allir leystir frá störfum í kjölfar dauða Grays. Ekki hefur verið greint frá því hvort þeir séu nú í haldi lögreglu eður ei.
Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira