Gefandi og gaman að gleðja Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 23. mars 2015 09:00 Ragnheiður eyðir um tveimur til þremur klukkutímum á dag í síðuna og hefur gaman af. fréttablaðið/Stefán
Ragnheiður Jónsdóttir heldur úti síðunni Vísukorn og ljóð á Facebook. „Frá því ég var unglingur hefur maður alltaf verið annað slagið að dunda sér við þetta, þó maður hafi aldrei lært neitt í þessu og sumt er náttúrulega óttalegt hnoð en ég læt það bara flakka. Ef manni líst ekkert á þetta þá betrumbætir maður það bara seinna,“ segir hún létt í lund. Á síðunni birtir Ragnheiður texta, ljóð og vísubrot sem hún ýmist semur sjálf eða þýðir visku- og gullkorn og fær leyfi fyrir að birta. Hún hefur lengi haft áhuga á vísnagerð en síðan varð eiginlega til fyrir tilviljun þegar hún byrjaði að birta texta í lokuðum hóp á Facebook en vinir hennar hvöttu hana til þess að opna síðuna. Ragnheiður tók af skarið og opnaði síðuna árið 2012 en síðan er nú með yfir sex þúsund „like“. „Það er bara svo mikið af fallegum textum og öðru sem manni finnst eiga skilið að fleiri fái að njóta.“ En textarnir og myndirnar eiga það sameiginlegt að vera jákvæð og upplífgandi.Hér má sjá eina af þeim fjölmörgum myndum sem Ragnheiður hefur birt á síðu sinni.Textana myndskreytir hún svo með sérstöku myndvinnsluforriti sem hún lærði sjálf á með þolinmæði og áhugann að vopni. „Ég rakst bara á þetta á netinu og svo lærði maður smám saman hvernig maður á að nota þetta,“ segir hún hlæjandi og bætir við: „Ég hef aldrei lært neitt á tölvu. Ef maður kynni eitthvað almennilega á tölvu þá gæti maður örugglega gert miklu meira,“ segir Ragnheiður en hún byrjaði með síðuna eftir að hún hætti að geta prjónað tímabundið vegna veikinda. „Maður finnur sér alltaf eitthvað til þess að gera.“ Hún segist vera farin að þekkja það fólk sem skoðar síðuna hvað mest og vita fyrirfram hvaða myndir kalli fram mestu viðbrögðin og áætlar að hún eyði um tveimur til þremur klukkutímum á dag í það að myndskreyta textana, það sé þó allt þess virði. „Þó þetta sé mikil vinna og annað þá er þetta rosalega gaman. Það er alltaf gaman að geta létt undir með einhverjum og glatt einhvern.“
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Sjá meira