Tímabært að geta skotið til baka á Hauk Helga og Peter Tómas Þór Þórðarson skrifar 17. mars 2015 06:30 Jakob Örn Sigurðarson, Hlynur Bæringsson, Ægir Þór og Raggi Nat mæta Hauki Helga og Peter Öqvist í 8-liða úrslitum. Fréttablaðið/Daníel
Sundsvall Dragons og LF Basket, tvö af þremur Íslendingaliðum sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta, mætast í kvöld í fyrstu viðureign liðanna í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar. LF Basket hafnaði í fjórða sæti og Sundsvall því fimmta og því hafa LF-menn heimaleikjaréttinn, en með því spilar Haukur Helgi Pálsson. Hlynur Bæringsson, Jakob Örn Sigurðarson, Ægir Þór Steinarsson og Ragnar Nathanaelsson eru allir á mála hjá Drekunum. Haukur Helgi hefur haft gott tak á félögum sínum úr landsliðinu, en LF vann alla fjóra leiki liðanna í deildarkeppninni. „Þetta er alveg komið gott. Nú er kominn tími á að vinna þá til að geta skotið til baka á Hauk,“ segir Jakob Örn léttur við Fréttablaðið, en hann var í rútunni á leiðinni til Luleå þegar blaðamaður náði í hann í gær. LF vann fyrstu tvo leikina á móti Sundsvall í deildinni með samtals 23 stiga mun en hinir tveir unnust með tveimur og þremur stigum. „Þetta hefur verið jafnara undanfarið þannig að við teljum okkur eiga góða möguleika. Þetta verður auðvitað erfitt en ég held þetta verði jöfn sería og margir spennandi leikir. Það eru lokakaflarnir sem gætu skipt sköpum,“ segir Jakob, en þjálfari LF Basket er Peter Öqvist, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands. „Það er alveg nóg af hlutum í þessari seríu sem hægt er að nota til að hvetja sig áfram. Það eru auðvitað þessi fjögur töp fyrir LF í deildinni og svo að vera að spila á móti Hauki og Peter,“ segir Jakob. Haukur Helgi hefur spilað mjög vel fyrir LF í vetur. Hann spilaði 30 mínútur að meðaltali leik, skoraði 12,9 stig, tók 4,9 fráköst og gaf 3,4 stoðsendingar. Þá er hann með 44,3 prósent nýtingu í þriggja stiga skotum sem er það langbesta hjá liðinu. „Ég myndi segja að Haukur Helgi væri einn af þremur bestu mönnum LF. Þeir eru með tvo Bandaríkjamenn sem þeir leita mikið til í sókninni en Haukur gerir svo mikið af hlutum,“ segir Jakob um landsliðsfélaga sinn. „Haukur skorar, tekur fráköst og hefur verið duglegur að gefa stoðsendingar í allan vetur. Spilið fer svolítið í gegnum Hauk sem er að taka réttar ákvarðanir. Hann er mjög mikilvægur fyrir LF í sókninni og sérstaklega í vörn þar sem hann er stór en hreyfanlegur og getur valdað marga menn. Peter vissi upp á hár hvað hann var að gera þegar hann fékk Hauk til sín,“ segir Jakob. Sjálfur hefur Jakob spilað vel fyrir Sundsvall eins og oft áður, en hann skoraði 16,1 stig að meðaltali í leik. Jakob var ekki með íslenska landsliðinu í undankeppni EM 2015 þar sem hann gaf ekki kost á sér, en hann er í Berlínarhug núna. „Ég er ekki búinn að skoða þetta mikið, en eins og staðan er núna þá er ég klár. Hugurinn leitar núna til Berlínar,“ segir Jakob Örn Sigurðarson.
Körfubolti Mest lesið Fyrrum dýrasti enski leikmaðurinn mættur í F-deildina Fótbolti Stuðningsmenn Palace mótmæla ákvörðun UEFA Fótbolti Elvar Már til Póllands Körfubolti „Við erum alls ekki hættir, þetta er rétt að byrja“ Fótbolti Erlendum leikmönnum Ármanns fækkar um einn Körfubolti Uppgjörið: Breiðablik - Egnatia 5-0 | Algjör einstefna á Kópavogsvelli Fótbolti Ásthildur skoraði átján mörk í stórsigri íslensku stelpnanna Handbolti Dagskráin í dag: Snóker og golf, aftur Sport Sænsku meistararnir örugglega áfram Fótbolti Cifuentes tekur við Leicester Fótbolti Fleiri fréttir Elvar Már til Póllands Erlendum leikmönnum Ármanns fækkar um einn Oladipo með augastað á endurkomu Enginn Kobe Bryant á topp tíu yfir þá bestu í sögunni Wembanyama fær grænt ljós frá læknateymi Spurs Raggi Nat á Nesið Sautján ára troðsludrottning vekur athygli Stólarnir semja við spænskan leikstjórnanda Sjö körfuboltamenn að fá íslenskan ríkisborgararétt Strákarnir unnu Slóvena á EM Fjögur lið sýnt LeBron áhuga Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Sjá meira