Engin hús hærri en kókospálmi Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 15. mars 2015 09:30 "Það var ekkert annað í boði en að bregða undir sig betri fætinum og heimsækja eina barnabarnið,“ segir Vilborg. Vísir/Stefán
Við vörðum síðustu jólum og áramótum og janúar hinum megin á hnettinum vegna þess að eldri sonur okkar tók sig upp með konu og eina barnabarnið okkar og fór í mastersnám í Singapúr,“ segir Vilborg Halldórsdóttir, leikkona og leiðsögumaður.Vilborg og Helgi með Orra syni sínum, tengdadótturinni Kristínu Maríellu og barnabarninu Ylfu.Rétt fyrir jól hélt hún á vit ævintýranna í Indónesíu, ásamt Helga Björnssyni söngvara, eiginmanni sínum. „Við flugum til Frankfurt snemma morguns og eyddum deginum þar, meðal annars á jólamarkaði og tókum síðan kvöldflug til Singapúr,“ rifjar hún upp.Skýjakljúfana ber við himin í Singapúr á bak við þær Vilborgu og Ylfu.„Í vélinni var borinn fram kvöldverður og stuttu síðar lögðumst við til svefns, vöknuðum svo við að verið var að bera fram morgunmat og bara tveir tímar, af ellefu, eftir til Singapúr.“ Aðfangadagskvöld var mjög óformlegt, haldið í þakgarði í hitabeltinu og jóladagur var fjölskylduvænn að sögn Vilborgar. Svo var flogið til Balí á annan.Ströndin í Sanúr á Balí.„Við vorum á Balí í tvær vikur ásamt litlu fjölskyldunni. Leigðum villur á tveimur mismunandi stöðum,“ lýsir hún. „Fyrri vikuna vorum við í Sanúr rétt við ströndina og þá seinni í Jimbaran, þar vorum við hærra uppi og með útsýni yfir eyjuna og eldfjallagarðinn.“ Reykelsi, fegurð og ljóðræna.„Manni líður aldrei eins og í færibandatúrisma en er stöðugt að verða snortinn af fegurð og natni,“ segir Vilborg.Vilborg segir sig lengi hafa dreymt um að koma til Balí, enda fræg lína eftir hana í textanum Mér finnst rigningin góð: Einu sinni fórum við í bað og ferðuðumst til Balí. „Ég hafði smá áhyggjur af því að ég yrði fyrir vonbrigðum en sá ótti var ástæðulaus,“ segir hún. „Yfirvöld á Balí hafa tekið svo réttan pól í hæðina í sambandi við túrisma og innfæddir halda fast í sína menningu. Þeir eru flestir hindúatrúar, alls staðar eru hof og í hverjum garði lítið altari. Allt ilmar af reykelsi, fegurð og ljóðrænu og manni líður svo vel þegar allt er svona fallegt. Þá er svo auðvelt að slaka á,“ segir Vilborg og bætir við.Fagur veggur í borginni Canggu.„Það kostar líka lítið að lifa á Balí. En áfengið er dýrt, það er flutt svo langt að, af því að engin vínþrúga þrífst í hitabeltinu. Svo var mjög lélegt netsamband svo það var netfrí og áfengisfrí. Hins vegar vorum við alltaf að drekka einhverja geggjaða djúsa þannig að þetta var mjög heilandi frí.“ Gjald er tekið af ferðamönnum bæði við komu til Balí og brottför að sögn Vilborgar. „Um milljón ferðamenn heimsækja þessa litlu eyju á ári en íbúarnir eru á fimmtu milljón,“ lýsir hún og ber lof á eyjarskeggja fyrir arkitektúrinn.Á gamlárskvöld var flott sýning á Balídönsum og þar var líka mikið sungið.„Ákveðið var á Balí að engin bygging mætti vera hærri en hæsti kókospálmi og sú stefna hefur breiðst út um eyjar Kyrrahafsins. Þarna er fullt af nýjum villum og fínum hótelum en allt er byggt í sátt við þann stíl sem fyrir er og tengt við fortíðina. Í nýju húsi er kannski eldgamall, útskorinn gluggi, eða jafnvel hurð, eins og 150 ára gömul. Hitt er allt nútímalegt. Við fórum í æðislega veislu á gamlárskvöld í hóteli sem virtist gamalt, en nei, nei, þá var það byggt árið 2000. Manni líður aldrei eins og í færibandatúrisma en er stöðugt að verða snortinn af fegurð og natni.Innfæddir á Balí eru trúir uppruna sínum og það endurspeglast í arkitektúrnum.Hitastigið var um 30 gráður á Balí, að sögn Vilborgar. Þar eru góðar gönguleiðir, meðal annars upp á hæsta fjallið sem er eldkeila, 3.000 metra há. „Fólk er sótt um miðnætti og er á toppi fjallsins við sólarupprás. Auk þess er boðið upp á alls konar uppbyggjandi viðfangsefni á eyjunni, jóga, batík, útskurð og dans – fyrir utan allt nuddið,“ segir Vilborg sem stefnir að því að standa fyrir ferð til Balí í haust með lítinn hóp. En hvað fannst henni um Singapúr? „Það er alger andstæða við Balí. Singapúr er eiginlega borgríki, sirka á stærð við Reykjavíkursvæðið, allt byggt upp í loft með nútímaarkitektúr. Þar er maður í loftkældum mollum. Ég er bara ekki mollakona.“
Mest lesið Katy Perry og Justin Trudeau á stefnumóti Lífið „Þetta var algjört bíómyndamóment“ Lífið Sweeney sökuð um kynþáttahyggju Lífið Öldrun í hársverði - Fríða Rut gefur ráð Lífið samstarf Samband Gallagher-bræðra sagt á hálum ís Lífið Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Tónlist Myndaveisla frá troðfullri tuttugu ára Bræðslunni Lífið Sögulegur klæðnaður á dreglinum Lífið Ræðir það ekki í fjölskylduboði ef þú hittir frænda þinn á swing-viðburði Lífið Hágæða merkjavara á geggjuðum afslætti út föstudaginn Lífið samstarf Fleiri fréttir Þriggja ára snáði stal senunni í messu í Fljótshlíð „Við erum ekki að baða okkur í fortíðinni“ Sweeney sökuð um kynþáttahyggju Sögulegur klæðnaður á dreglinum Myndaveisla frá troðfullri tuttugu ára Bræðslunni Katy Perry og Justin Trudeau á stefnumóti „Þetta var algjört bíómyndamóment“ Samband Gallagher-bræðra sagt á hálum ís Harrý rétti fram eins konar sáttahönd Stjörnulífið: „Who the fuck is Kaleo?“ Ræðir það ekki í fjölskylduboði ef þú hittir frænda þinn á swing-viðburði Gordon Ramsay gerir upp Íslandsævintýri „Ekkert okkar grunaði að hann myndi fara þessa leið“ Destiny's Child með óvænta endurkomu Jóhanna Guðrún og Ólafur giftu sig Myndaveisla: Landinn skemmti sér konunglega í Vaglaskógi Bandaríkjaforseti birtir bull í bunkum Óvæntur Johnny Depp heiðraði Ozzy með Alice Cooper „Greyið, hann þarf að horfa á mig deyja“ Krakkatían: Dvergarnir sjö, klukkuturn og plánetur Ragga Holm og Elma giftu sig „Seldist upp í rúturnar nánast jafn snarlega og á tónleikana“ Unaðsvörur Harry Styles valda titringi Líf og fjör í Reykholti í Borgarfirði um helgina á Reykholtshátíð „Það er í raun kraftaverk að hún sé á lífi í dag“ Fréttatía vikunnar: Stórtónleikar, NBA-stjarna á klakanum og heimsfræg lesbía Fólk farið að flykkjast í Vaglaskóg Ása Ninna kveður Bylgjuna Will Smith við Davíð Goða: „Haltu áfram að skapa“ Fögnuðu 181 milljarðs samningi með því að sýna Trump á typpinu Sjá meira