Dagur heilags Patreks haldinn hátíðlegur á Íslandi 13. mars 2015 16:00 Píramídarnir í Gisa upplýstir í tilefni dagsins 2012.
Heimurinn verður grænn þann 17. mars næstkomandi en þá er gert ráð fyrir að yfir 70 milljónir manna muni fagna einum af verndardýrlingum Írlands, heilögum Patreki. Dagur heilags Patreks eða St. Patrick's Day verður haldinn hátíðlegur í sex heimsálfum og í flestum stærstu borgum heims. Má þar nefna Dyflinni, Dubaí, Líma, Sydney, Stokkhólmi og Moskvu. Að auki fer mikið fyrir fögnuðinum í bandarískum borgum á austurströndinni þar sem margir íbúar eiga ættir sínar að rekja til Írlands. Deginum er gjarnan fagnað með skrúðgöngum eða með því að lita þekkt kennileiti græn.Skakki turninn í Pisa upplýstur í tilefni dagsins 2013.Heilagur Patrekur fæddist á Bretlandi en var numinn á brott af írskum sjóræningjum. Heilagur Patrekur hét þó ekki Patrekur heldur Maewyn Succat. Hann lærði til prests og stundaði trúboð á Írlandi og segir sagan að hann hafi útrýmt snákum þar í landi. Hinn græni músasmári (shamrock) er tákn Írlands og er það rakið til þess þegar heilagur Patrekur kynnti konung Írlands fyrir smáranum sem tákn um hina heilögu þrenningu í kristinni trú. Dagur heilags Patreks er haldinn 17. mars ár hvert. Þar sem 17. mars fellur á þriðjudag í ár verður forskot tekið á sæluna hér á landi og haldið upp á daginn næstkomandi föstudag og laugardag. Hefð er fyrir því að hlusta á írska pöbbatónlist, fá sér freyðandi Guinness af krana og samgleðjast írskum frændum okkar. Meðal staða þar sem hægt er að halda upp á daginn eru English Pub, Lebowski Bar, Dubliner's, Celtic Cross, American Bar, Ölsmiðjan og svo Irish Pub í Hafnarfirði. Til þess að fagna þessari írsku hátíð er hér hjálpartexti með írskum frösum sem þú getur notað: Pionta GUINNESS, le do thoil. (Pijun-tah GUINNESS, leh duh huh-il) Glas af Guinness, takk fyrir. Lá Fhéile Pádraig Sona Duit! (LAw Ale-yeh Pawd-rig Sunna Ditch) Gleðilegan St. Patrick's Day! Ádha na nÉreannach. (Awe nah Nay-ron-okh) Írska lukkan.Sláinte! (Sloyn-chec) Skál!Go raibh maith agat. (Guh rev mah a-gut) Takk fyrir.Tá fáilte romhat. (Taw foyle-chec roh-ot) Minnsta mál.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Sjá meira