Geta látið fara vel um sig í unglingadeildinni Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 11. mars 2015 13:00 Soffía og Theresa Himmer hafa lagt hönd á plóginn við að hanna unglingadeildina og tylla sér þar ásamt nokkrum krökkum. Vísir/Valli
Unglingar geta á afslappaðan hátt lesið, spjallað lært og vafrað í nýrri unglingadeild sem verður opnuð á morgun í Bókasafni Seltjarnarness. „Við erum búin að færa til hverja einustu hillu og hverja einustu bók á bókasafninu til að skapa ákjósanlegt pláss fyrir unglingana. Ætlum að opna það á morgun og erum búin að fá Reykjavíkurdætur til að koma fram við það tækifæri,“ segir Soffía Karlsdóttir, sviðsstjóri menningarsviðs á Seltjarnarnesi. Soffía kveðst hafa fengið til liðs við sig hina fjölhæfu Theresu Himmer, arkitekt og myndlistarmann. „Theresa leitaði meðal annars ráða hjá Ungmennaráði Seltjarnarness þegar hún hannaði rýmið og er búin að þróa flotta sófaeiningu, eða „Sofa Complex“ eins og hún kallar það. Þar geta margir verið saman í einum hluta og fáir saman í öðrum. Allt er þetta mjög listrænt, smíðað úr birki og fóðrað með teppi sem skartar ljósmynd eftir Theresu sjálfa. Eftir að teppið var lagt á fengu einingarnar á sig nýjan blæ og virka eins og borg,“ segir Soffía. Grunnhugmyndin að deildinni er að sjálfsögðu sú að fá krakka á Nesinu og úr Vesturbænum til að sækja bókasafnið, að sögn Soffíu. „Við höfum undanfarið lagt áherslu á að kaupa unglingabókmenntir, blöð og tímarit sem við trúum að höfði til unga fólksins og ætlum að setja upp sérstakar hillur fyrir það efni.“ Soffía sér fyrir sér að heilir bekkir úr skólunum geti komið í heimsóknir í deildina, þar verði fyrirlestrar haldnir og fleiri viðburðir. „Svo geta unglingarnir verið hér að læra líka. Geta legið í sófunum og látið fara vel um sig, jafnvel haft lappirnar upp í loft ef þeim sýnist svo.“ Rýmið miðar að því að mæta ólíkri samskiptaþörf ungmenna í fámenni eða fjölmenni. Innsetningin samanstendur af sex föstum sætiseiningum og lausum stólum. Þar er hægt að dvelja einn með sjálfum sér eða vera umvafinn stórum hópi vina og allt þar á milli. Formin eru hönnuð fyrir líkama í hvíldarstöðu, sitjandi, hallandi eða liggjandi með fæturna lárétt eða lóðrétt. Þar er hvorki miðja né hápunktur sem skapar jafnræði innan hópsins og ýtir undir lýðræðisleg samskipti. Smíðaverkstæðið Hjól atvinnulífsins sá um smíðina. Teppið er prentað af EGE í Danmörku sem styrkti verkefnið.
Mest lesið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Lífið Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lífið Ástfangin pör á Djöflum Menning Össur stendur með sundmönnunum Lífið Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Lífið Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Sendum Möggu Stínu í Eurovision Lífið RJ Mitte er látinn Lífið Fleiri fréttir RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Sjá meira