Moses Hightower fær gullplötu Gunnar Leó Pálsson skrifar 2. mars 2015 10:00 Piltarnir eru sáttir með gullplötuna sem þeir fengu fyrir plötuna Önnur Mósebók. Mynd/Haraldur Leví „
Þetta kom ekkert svakalega á óvart, hún hefur verið að malla hægt og rólega undanfarið ár í sölu en við erum mjög ánægðir þetta,“ segir Andri Ólafsson, bassaleikari hljómsveitarinnar Moses Hightower. Hljómsveitin fékk afhenta gullplötu fyrir sölu á sinni annarri breiðskífu, sem ber titilinn Önnur Mósebók, en gullplata er afhent fyrir sölu á fimm þúsund eintökum. Hljómsveitin eru um þessar mundir að smíða nýja plötu. „Við tókum upp grunna að nýrri plötu í janúar. Við eigum töluvert eftir,“ segir Andri. Sveitin gerir ráð fyrir að klára upptökurnar í mars þegar gítarleikari sveitarinnar, Daníel Böðvarsson, kemur til landsins en hann er búsettur í Berlín. „Draumaplanið er að gefa út plötuna um mitt sumar eða síðla sumars.“ Andri segir sumarblæ vera yfir hluta plötunnar. „Þetta er ekkert eintómt danspartí en það er bjart yfir á köflum.“ Sveitin gerir ekkert endilega ráð fyrir að nýja platan verði mjög frábrugðin fyrri plötum. „Það er enn svo mikið eftir að við vitum ekki alveg hvernig þetta fer. Við erum ekkert að reyna að rembast við eitthvert nýtt konsept,“ bætir Andri við. Platan verður á íslensku líkt og fyrri tvær plöturnar en textagerðin er enn skammt á veg komin. Hljómsveitin stefnir á tónleikahald hér á landi í mars. „Það verður eitthvað um að vera í mars en annars mjög lítið það sem eftir er af ári.“ Allir meðlimir sveitarinnar eru einnig önnum kafnir í öðrum verkefnum.
Mest lesið RJ Mitte er látinn Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Lífið Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Ástfangin pör á Djöflum Menning Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lífið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Fleiri fréttir RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Sjá meira