Innlent

Algjör óvissa er um Náttúruminjasafnið

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Fyrirhugað var að Náttúruminjasafnið færi í Perluna en allskostar óljóst hefur verið um framtíð safnsins síðustu ár. Mynd/THG arkitektar.
Fyrirhugað var að Náttúruminjasafnið færi í Perluna en allskostar óljóst hefur verið um framtíð safnsins síðustu ár. Mynd/THG arkitektar.
 „Það er náttúrulega til skammar hvernig ríkið hefur staðið að þessu og í ljósi aukins fjölda ferðamanna og áhuga á náttúru landsins að þetta skuli ekki vera eins og hjá siðuðu samfélagi. Það skil ég ekki,“ segir Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ um þá stöðu sem Náttúruminjasafn Íslands er komið í.

Fréttablaðið greindi frá því í gær að leigusamningi safnsins hefði verið sagt upp og þannig ríkir algjör óvissa um öll húsnæðismál safnsins sem hefur ekkert sýningarrými haft til afnota um árabil.

Perlan Fyrirhugað var að Náttúruminjasafnið færi í Perluna í Öskjuhlíð. Úr því hefur ekki enn orðið. Mynd/THG arkitektar
Garðabær sóttist eftir því á sínum tíma að fá safnið til sín, þar sem húsnæði var byggt fyrir Náttúrufræðistofnun.

„Við lögðum gríðarlega mikið á okkur að bjóða safnið velkomið í Garðabæ, við hliðina á Náttúrufræðistofnuninni. Við sáum alveg gráupplagt tækifæri að bæta við það hús með einhverjum hætti og vera með þetta undir einu þaki,“ segir Gunnar.

Ekki var tekið undir þessar hugmyndir Garðabæjar en í mars 2013 var undirritaður samningur af ríki og borg um að opna ætti grunnsýningu Náttúruminjasafnsins í Perlunni haustið 2014.

Reykjavíkurborg hefur þannig lýst vilja sínum til þess að taka við safninu en Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir algjöra óvissu ríkja um málið.

Gunnar Einarsson
„Málið er þannig statt að það er í gangi samstarf milli borgarinnar, safnsins, mennta- og menningarmálaráðuneytis og fjárfesta. Ég hef ekki skynjað annað en jákvæðni allra, þar á meðal ráðherra, til málsins, en það er ekkert hægt að segja neitt um tímasetningar varðandi nauðsynlegar ákvarðanir á þessu stigi. Við erum í raun stödd í algjörri óvissu um þetta safn. “

Dagur tekur þó undir þau orð Gunnars að ástandið sé óviðunandi.

„Aðbúnaður Náttúruminjasafns Íslands hefur verið þjóðarskömm um árabil, ef ekki í áratugi. Nú er samstarf í gangi þar sem vanda þarf til verka. En ég myndi fagna því ef málin færu að skýrast,“ segir Dagur.

Engin svör bárust um stöðu málsins frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu þrátt fyrir tilraunir Fréttablaðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×