Leitar að framandi dýrum til þess að leika í myndbandi Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 19. febrúar 2015 09:00 Ný plata er væntanleg frá Steinunni og er hún núna að leita að spennandi dýrum til þess að hafa í nýju tónlistarmyndbandi. Mynd/NannaDís
Tónlistar- og myndlistarkonan Steinunn Harðardóttir, betur þekkt sem dj. flugvél og geimskip, er að leita að framandi og spennandi dýrum til þess að fara með hlutverk í nýju tónlistarmyndandi sem myndlistarkonan Guðlaug Mía Eyþórsdóttir gerir. „Við erum að leita að framandi dýrum til að fá lánað eitt síðdegi eða svo til þess að leika í nýja myndbandinu. Fólk má hafa samband við okkur og okkur þætti skemmtilegast að fá einhver dýr sem eru ólögleg, einhverjar slöngur eða tarantúlur,“ segir Steinunn og bætir við að fyllsta trúnaðar verði gætt. Hún gaf á dögunum út myndband við lagið Hjari veraldar sem er eitt af lögunum sem prýðir plötuna Nótt á hafsbotni sem er væntanleg frá tónlistarkonunni. Viðfangsefni plötunnar er hafsbotninn. „Ég færði mig niður á hafsbotninn, mér fannst það liggja beint við. Ef maður fer alveg niður á dýpsta hafsbotninn þá er hann kolsvartur og dimmur og þar hittir maður fyrir lýsandi fiska og þeir minna svolítið á lýsandi stjörnur í geimnum,“ segir hún en viðfangsefni fyrri plötu hennar, Glamúr í geimnum, var geimurinn sjálfur. „Hafsbotninn er líka ekkert meira kannaður en geimurinn. Þannig að maður getur gefið hugmyndafluginu lausan tauminn.“ Steinunn hélt út fyrir borgarmörkin til þess að vinna plötuna og dvaldi þar ein í gömlu húsi sem að hennar sögn er reimt í. „Ég var þarna ein í viku í dimmasta skammdeginu. Það var mjög mikill snjór og mjög mikill kuldi og alltaf að blása vindur inn,“ segir hún. Vegna umhverfisins var tónninn í plötunni annar en hún lagði upp með. „Ég ætlaði að fara að gera einhverja sumarsmelli en öll lögin urðu drunga- og óhugnanleg af því ég var svo hrædd.“ Steinunn er spennt fyrir því að gefa nýju plötuna út. „Ég er mjög spennt, er byrjuð að laumast til þess að spila eitt og eitt nýtt lag á tónleikum en er að reyna að halda aftur af mér svo ég geti haldið útgáfutónleika og spilað öll lögin.“ Þeir sem eiga spennandi og óvenjuleg gæludýr geta hafa samband við Steinunni í gegnum netfangið geimskip@gmail.com. Hér má sjá tónlistarmyndband við lagið Hjari veraldar:
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira